ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Hin geðþekka Megan Fox

08:28 › 3. júlí 2009

Íslendingar eru margfaldir í roðinu eins og umheimurinn hefur heldur betur fengið að kynnast undanfarið og þá ekki síst breskir og hollenskir sparifjáreigendur sem ætluðu sér að ávaxta sitt pund á Icesave-reikningum. Það er þó mun fleiri sem fá að kenna á rótgrónum skepnuskap þjóðarinnar en nafnlausar kennitölur í bókhaldi hins gjaldþrota Landsbanka. Súpermódel og stjórstjörnur úti í hinum stóra heimi fræga fólksins verða iðulega fyrir barðinu á tvöföldu siðgæði Íslendinga og þá helst í fjölmiðlum. Þar kemur berlega í ljós að samkvæmt skilningi Íslendinga eru þeir öðrum æðri og verðskulda allt aðra meðferð en sauðsvartir útlendingar.

Þannig þótti sjálfsagt að lofa Íslendingum sem áttu fé í íslenskum bönkum á Íslandi að innistæður þeirra væru tryggðar á meðan útlendingum sem áttu fé í íslenskum bönkum í útlöndum var ætla að éta það sem úti fraus.

Sami þankagangur gegnsýrir íslenska fjölmiðla þar sem íslenskt frægðarfólk er sett skörinni ofar en það útlenda sem er þó þrátt fyrir allt iðulega frægara, fallegra, ríkara og oftar en ekki hæfileikaríkara en íslenskar hliðstæður þeirra. Grandvarir fjölmiðlar tipla á tánum í kringum íslenska frægðarfólkið og sjá sjaldnast ástæðu til annars en fjalla bara um það á jákvæðum nótum með ógurlegum flaumi fallegra lýsingarorða.

Þegar útlendingar eru annars vegar er hins vegar ekkert heilagt og þá er allt látið flakka. Meira að segja virðulegur fjölmiðill eins og Eyjan.is sem ritstýrt er af sagnfræðingi sem ekki má vamm sitt vita hegðar sér eins og illa uppalinn götustrákur þegar útlenskar stjörnur eru annars vegar. Skólabókardæmi um þetta er frétt á Eyjunni um leikkonuna þokkafullu Megan Fox sem Eyjan sér ástæðu til að upplýsa að sé „treggáfuð“.

Nú veit Svarthöfði ekkert hvað Eyjan hefur fyrir sér í þessu en veit upp á sína tíu fingur að jafnvel þótt á ritstjórn Eyjunnar lægi fyrir vottað greindarpróf íslenskrar stjörnu þá yrði þess látið ógetið að hún væri með lágmarksgreind. Eyjan er nefnilega vönd að virðingu sinni og varar lesendur sína við því að meiðandi ummæli verði til dæmis ekki liðin í athugasemdakerfi vefjarins. Þetta á þó vitaskuld aðeins við um Íslendinga þar sem Svarthöfði veit ekki hvaða ummæli eru meiðandi ef það að segja manneskju treggáfaða eru það ekki.

Helvíti mun frjósa áður en við sjáum Geir Ólafsson, Ásdísi Rán eða Bubba uppnefndan með þessum hætti enda hafa íslenskir fjölmiðlar leyst þetta mál innanlands með því að skella lyndiseinkunninni „geðþekki“ á íslenskt frægðarfólk. Það orð getur komið í staðinn fyrir hvaða óþverra sem er og lesandanum er látið eftir að skipta á því fyrir fúkyrði. En er ekki rétt að láta jafnt yfir alla ganga og leyfa Megan Fox bara að vera geþekk eins og allt fína fólkið okkar?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?