Mikið hrikalega er gaman að spádómsgáfu góðs fólks. Fólks sem sér framtíðina jafn skýrt og við sjáum dagblaðið fyrir framan okkur. Þetta er auðvitað hreint ótrúlegt að meðal okkar dauðlegra manna og kvenna gangi um fólk sem getur sagt fyrir um hvað gerist næst. Íslandi er sannarlega blessun að svo næmu fólki sem Láru Ólafsdóttur spámiðli sem varaði okkur við risaskjálftanum í fyrrakvöld, þessum sem mældist heilir 1,5 á Richterkvarða.
Auðvitað er miklu betra að hlusta á spámiðla en þá menn sem farið hafa í skóla til að læra jarðskjálftafræði og annað slíkt og sáu ekki fyrir neinn jarðskjálfta. Hver er til að deila við dularfulla hæfileika leyndardómsfulls fólks? Hver er til að segja að velmenntað fólk með fræðin á hreinu viti eitthvað um málið? Þess vegna þótti Svarthöfða svo afskaplega skemmtilegt að fylgjast með umræðu fólks um spá Láru miðils, að fylgjast með fólki hafa áhyggjur af yfirvofandi hörmungum, allt út af spá eins miðils.
Annars fannst Svarthöfða gaman að nafni miðilsins. Lára miðill er nefnilega nafna og starfssystir Láru miðils sem gerði garðinn frægan, og raunar allt vitlaust, á fyrstu áratugum síðustu aldar. Lára miðill var dáðasti og vinsælasti miðill landsins í tvo áratugi. Miðill sem sameinaði kynslóðirnar, lifandi og látnar, með því að setja lifandi í beint samband við látna ættingja sína. Bara verst að þegar upp var staðið voru það allt saman svik. Í tuttugu ár hafði hún blekkt fjölda fólks sem hafði lagt leið sína til hennar í von um að komast í samband við framliðna. Auðvitað kemur Svarthöfða ekki til hugar að Lára miðill 21. aldarinnar beiti vísvitandi blekkingum, en kannski hefði einhverjum komið í hug að nafnið eitt gæti verið vísbending um að ekki gengi allt eftir af spám hinnar fræknu konu.
Uppáhald Svarthöfða er þó tveggja barna móðirin í Grindavík sem visir.is sagði frá að hefði flúið heimili sitt vegna skjálftaspár Láru miðils. Hún og börn hennar hafa vonandi haft skemmtilega ferð upp úr krafsinu.
Blogg
Skjálfið þið, miðlar
08:05 › 29. júlí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
