ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Fátækur spilar lottó

10:29 › 24. júlí 2009

Svarthöfði hefur lengi átt sér þann draum að verða ríkur. Allar mögulegar leiðir hafa verið skoðaðar í þeim efnum en án árangurs. Lottóið er ein þeirra. En það var sama hve margar raðir voru keyptar, enginn gróði. Eftir margra ára útgjöld var loksins nóg komið. Kreppan útilokaði að bruðlinu í lottóið yrði haldið áfram. Eitt sinn þegar Svarthöfði fór með miða með númerunum sínum í hverfissjoppuna kom babb í bátinn. Afgreiðslumaðurinn tók við visakortinu og renndi í gegnum vél. Kortinu var hafnað. Svarthöfði var miður sín. Hann fór heim með krumpaðan miðann og settist fyrir framan sjónvarpið, niðurbrotinn og sannfærður um að nú myndi stóri vinningurinn koma á talnaröð hans. Það voru 35 milljónir króna í pottinum. Mínúturnar í lottóútsendinguna siluðuðust áfram í ískaldri þjáningu hins blanka lottóspilara. Svo birtist kynnirinn á skjánum og tromlan með tölusettum kúlunum sem skildu á milli fátæktar og ríkidæmis fór á fleygiferð. Spennan var næstum óbærileg og Svarthöfði kreppti sveittar hendur sínar um arma lazy boy-stólsins sem hann hafði keypt í Góða hirðinum. Það suðaði fyrir eyrum hans. Þulan las upp fyrstu töluna. Það var 11 sem var einmitt á miðanum. Meira að segja fyrst í röðinni. Svarthöfði skrækti upp yfir sig í skelfingu. Veruleikinn var að breytast í martröð. Næsta tala birtist. Silkimjúk röddin kynnti töluna 24. Hún var líka á miðanum. Þetta varð enn hryllilegra þegar talan 32 kom. Svarthöfði faldi andlitið í gaupnum sér og vonaði eitt andartak að hann væri sofandi. Hann heyrði skrönglið í fjórðu kúlunni en þorði ekki að líta upp. Milli vonar og ótta beið hann eftir röddinni. Næsta tala er 17 heyrðist eins og úr órafjarlægð. Svarthöfða létti óskaplega. Þetta var ekki hans tala. Lokatalan var svo 3. Hún var ekki heldur á blaðinu. Á þessari stundu uppgötvaði Svarthöfði að því fylgdi enn meiri spenna að eiga tölur en ekki miða. Hann hefði farið nokkurn veginn sléttur út úr því að kaupa miðann. En síðan þetta gerðist hefur Svarthöfði grætt. Hann sest á laugardagskvöldum fyrir framan sjónvarpið með krumpaða miðann sinn og fagnar ógurlega í hvert skipti sem tölurnar hans sitja fastar inni í tromlunni. Sparnaðurinn nemur þegar þúsundum króna og vex í hverri viku. Og spennan er ókeypis. Svarthöfði leitar nú annarra leiða til að verða ríkur. Hann er að velta fyrir sér að láta spyrjast út að hann hafi stórgrætt á því að selja gosverksmiðju á Grænlandi. Þannig gæti hann komist yfir banka. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?