ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Varhugavert fólk

16:19 › 22. júlí 2009

Einhvern tíma var sagt að í huga framsóknarmanna mætti lýsa útlendingum í tveimur orðum: „Varhugavert fólk.“ Auðvitað er þetta meinleg pilla í garð dugmikilla framsóknarmanna því eins og flestir vita studdi um það bil helmingur flokksmanna alltaf veru varnarliðsins og sumir núverandi flokksmanna standa á því fastar en fótunum að Barack Obama sé í raun framsóknarmaður. Bara í vitlausu landi.

En það er þetta með útlendingana. Hin hugprúða íslenska þjóð barðist fyrir því lengi vel að áhrif útlendinga yrðu sem minnst hér á landi. Fyrst lýstum við yfir sjálfstæði, reyndar í skjóli bandarísks hervalds. Síðan bönnuðum við þeim að eignast sjávarútvegsfyrirtækin okkar. Enda ekki hverjum sem er treystandi til að vera íslenskur sægreifi. Og ekki höfum við viljað sjá útlendinga til að reka olíufélögin okkar enda er ekki hverjum sem er treystandi til að standa í svo viðkvæmum rekstri, eins og við komum Stirling-ættinni í skilning um hér um árið. Við skulum nú ekki minnast á auðlindirnar okkar, þessa þjóðareign (ekki stjórnarskrárbundin enda getur þjóðin víst ekki átt neitt, nema ef til vill skuldir) sem við höfum staðið vörð um. Hvað þá að við höfum viljað hafa banka í höndum útlendinga. Að vísu höfum við talað um að það gæti verið í lagi í einhverjum litlum mæli en svo horfið frá því um leið.

Og hvað gerist þá? Nema það að útlendingarnir eiga að fara að eignast bankana okkar. Og ekki hvaða banka sem er. Þeir fá Kaupþing og Íslandsbanka sem er auðvitað stórmál að endurreisa en kannski viðráðanlegt. En hvað með bankann sem við viljum losna við? Hvað með bankann hvers Ísbjörgu við vildum helst að við hefðum aldrei heyrt minnst á? Eigum við að losna við hann í hendur útlendinga? Ætla þeir að leysa vandann þar? Nei, ónei. Þann banka ætla þeir að leyfa okkur að sitja uppi með og greiða dýrum dómum.

Og hvað gerist nú? Nú þegar útlendingar eignast bankana? Ná þeir þá ekki yfirráðum yfir öllu því sem við höfum reynt að halda þeim frá? Nú, olíufélögin standa misjafnlega vel, eða skyldi maður segja illa. Gætu þau ekki endað sem eign útlenskra banka? Útgerðirnar og kvótinn eru víða veðsett upp í topp. Eignast bankarnir ekki hvort tveggja? Og hvað þá með orkulindirnar okkar og aðrar auðlindir?

Já, útlendingar eru varhugavert fólk og nú virðast þeir ætla að eignast okkur með húð og hári. Og það versta er að við vitum ekki einu sinni hverjir þeir eru. Þeir gætu jafnvel verið íslenskir útrásarvíkingar búnir að kaupa upp verðlítil skuldabréf til að eignast bankana sína aftur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?