Svarthöfði kann ekki á Excel og hefur ekki hundsvit á viðskiptum og var nú alltaf klár á því að Wernerssynir, Björgólfar, Jón Ásgeir, Kaupþingskempurnar og allir hinir aðalspaðarnir sem slegið hafa um sig með milljörðum væru ofjarlar hans í bissniss. Nú er Svarthöfði ekki jafnviss í sinni sök enda hefur honum aldrei tekist að setja neinn annan en sálfan sig á hausinn. Nú er hins vegar komið á daginn að ef maður er nógu klikkaður getur maður sett heila þjóð á kúpuna.
Eitt hefur Svarthöfði þó talið sig vita upp á sína tíu fingur: Það er ekki hægt að setja símafyrirtæki og tryggingafélög á hausinn. Slík fyrirtæki eru eins og bankinn í spilavítunum í Las Vegas. Þau geta ekki tapað. Eða það hélt Svarthöfði en þessi sannindi eins og svo mörg önnur eru nú innantóm þvæla.
Íslensk tryggingafélög ættu að vera óþrjótandi gullnámur þó ekki væri nema bara vegna þess að við erum svo fá að þrátt fyrir að öll þjóðin tæki sig til og klessukeyrði allan bílaflota sinn sama daginn ætti slíkt stórtjón ekki að ná að tæma bótatryggingasjóði.
Suðurlandsskjáftar og aðrar náttúruhamfarir hafa hingað til ekki náð að laska íslensk tryggingafélög. Gamalgróið og stöndugt tryggingafélag eins og Sjóvá hefur í gegnum tíðina getað staðið allt af sér. Meira að segja að hafa verið með Svarthöfða í ökutækis- og innbústryggingu í áratugi. Þetta ágæta félag var hins vegar ekki nógu öflugt til að standa af sér þær hamfarir sem fylgdu því að kaupa fasteignir í Hong Kong.
Sjóðir félagsins réðu ekki við þær náttúruhamfarir sem í daglegu tali eru kallaðar íslenskir úrásarvíkingar sérstaklega ekki þar sem eigendur þess voru tannhjól í dómsdagsvél góðærisins. Þegar þeir fóru um félagið eins og skjálfti upp á fimm hundruð og fimmtíu á Richter fór allt á hliðina enda hringsnerist sjálfur forstjórinn í öllum ósköpunum og vissi ekki hvað sneri upp eða niður.
Niðurstaðan er þó óumdeilanlega sú að tryggingar snúast ekki um fólk heldur eigendur tryggingafélaga og að ekkert er ótryggara en sjóðir félaga, sem tæknilega eiga ekki að fara á hausinn, þegar útrásargosar komast með puttana í reksturinn.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
