ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Lenti í laxveiði

08:08 › 5. júní 2009

Misjöfn eru kjör manna og lífsleiðin getur átt sér ýmsar beygjur. Þetta hafa margir reynt á eigin skinni. Menn lenda í ýmsum ófyrirséðum aðstæðum sem geta jafnvel sett mark sitt á líf þeirra. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi er einn þeirra sem lifað hafa lífi sínu vafðir í bómull. Allt frá því hann sat sem ungur maður við fótskör meistara síns, Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, hefur frami lærisveinsins verið jafn og stöðugur.

Fyrir eigið ágæti, heppni, og það að vera með blátt flokksskírteini gerðist Gísli Marteinn sjallþáttastjórnandi og bókstaflega sló í gegn. Almenningur frá fjöru til fjalls dáðist að hinum lokkaprúða pilti sem bræddi næstum hvert hjarta með einlægni sinni og vaskleika. Gísli Marteinn lenti í þessari stöðu fyrir tilviljanir lífsins. Og hann var svo eftirsóttur að lærifaðirinn ýtti honum inn á pólitískar brautir. Gísli Marteinn stefndi að því að verða borgarstjóri í Reykjavík. En þá lenti hann í að tapa í prófkjöri fyrir öldungi. Síðar þegar sigurvegarinn varð að hrökklast úr embætti vegna meintra spillingarmála varð Gísli Marteinn undir. Hanna Birna Kristjánsdóttir hreppti gullkeðjuna en Gísli Marteinn lenti í að fara í nám til Skotlands á fullum launum, framan af.

Það getur verið erfitt að vera eftirsóttur. Þetta þekkja fegurðardrottningar öðrum mönnum betur. Þótt Gísli Marteinn sé ekki fegurðardrottning eru menn gjarnan að reyna að fá félagsskap hans gegn velgjörðum eða jafnvel peningum. Hann er þá fenginn til að hlæja, segja brandara eða jafnvel að halda ræður. Hann hefur lent í mörgum slíkum uppákomum og þá gjarnan lent í að fá borgað fyrir. Nýjasta uppljóstrunin af þessum toga er sú að Gísli Marteinn var ráðinn til að fara með hópi Glitnismanna í rándýra laxveiðiá í Rússlandi. Ekki fékkst hann til að upplýsa hvort hann hefði verið veislustjóri við ána eða í herþyrlunni. En hann lenti í einhvers konar hlutverki á vegum bankans. Og Gísli Marteinn er góðhjartaður þegar kemur að því að veita öðrum gleði af gnægtarbrunni sínum.

Aðspurður hvers vegna hann hefði þegið greiðann sagði hann: „Ég var beðinn um að koma.“ Þannig lenti hann í laxveiði á kostnað banka. Frægt viðtal var við Akureyring í skemmtiriti þar sem hann gerði grein fyrir hjónaskilnaði sínum: „Ég lenti í framhjáhaldi,“ sagði hann dapur. Og þannig er lífið. Menn eru alltaf að lenda í öllum fjandanum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?