Svarthöfði er hættur að borga af lánunum sínum og skal fyrr dauður liggja en að hann leggi sitt af mörkum til Icesave-skuldarinnar. Svarthöfði stendur síður en svo einn á þessari sannfæringu enda er Íslendingum í blóð borið að vilja fá helst allt fyrir ekkert. Eða í það minnsta mikið fyrir lítið. Þeir greiða kreditkortareikninga sína seint og illa og segja bara helst aldrei skilið við þá aura sem þeir draga saman fyrr en í fulla hnefana. Við erum þjóðin sem gerir aldrei neitt eins og þeir hjá Intrum vita manna best.
Svarthöfði spyr sig því oft á dag hvernig í ósköpunum fautinn Gordon Brown og sauðirnir Steigrímur J. Sigfússon og Gylfi Magnússon fengu þá ringluðu hrossaflugu í höfuðið að við værum til í að borga Icesave-reikninginn þegjandi og hljóðalaust. Svarthöfði og aðrir Íslendingar eru afkomendur sauðaþjófa sem hafa frá því land byggðist stolið öllu steini léttara, unnið svart og stungið undan skatti hver í kapp við annan.
Skattsvik eru ein helsta þjóðaríþrótt okkar og þykja svo sjálfsögð að hingað til hefur það ekki talist til tíðinda þótt þekktir auðmenn dragi fram lífið á vinnukonuútsvari á pappírum. Og nú á allt í einu þessi forherta hjörð eiginhagsmunaseggja og sólóspilara á sparkvelli lífsins að fara að leggja í stærsta púkk Íslandssögunnar til að borga sukkreikning snældubilaðra, teinóttra bankamanna sem hafa þó ekki unnið sér neitt til saka annað en að svara genetískri gróðafíkn og græðgi í auðfengið fé. Hvaða vitleysa er þetta?
Útrásarvíkingarnir eru Íslendingar út í gegn og gerðu það sem við gerum best. Bara aðeins of vel. Bankaránin þeirra í Bretlandi og Hollandi voru tær snilld. Útpæld og sivilíseruð. Allt annar bragur á þessum gripdeildum en djöfulganginum í forfeðrum þeirra sem bitu í skjaldarrendur og átu berserkjasveppi áður en þeir rændu öllum flottu gellunum á Bretlandseyjum, nauðguðu hinum og skildu eftir í flæðarmálinu og þrættu svo rauðhærð írsk börn á öngla og notuðu í hákarlabeitu á heimleiðinni. Maður skyldi nú ætla að Brown og Darling ættu frekar að gera læti út af þeim ósköpum en þessum Icesave-peningum.
Auðvitað eiga þessir tjallabjánar að vita að víkingar skila ekki herfangi sínu. Aldrei. Þess vegna hafa þeir ekki krafist þess að við skilum þeim afkomendum allra sætu ambáttanna sem við náðum af þeim í denn. Þess vegna hafa Írar ekki farið fram á bætur, eða hlutdeild í aflanum, fyrir hákarlabeitubörnin og þess vegna borgum við ekki Icesave-peninginn.
Steingrímur J. á eftir að fá rækilega á baukinn þegar hann leggur Icesave-dílinn sinn fyrir alþingi Íslendinga þar sem þverskurðurinn af þjóð sauðaþjófa situr með alls kyns syndir, grjót, kúlulán, segldúka, dagpeninga og vinargreiða á bakinu. Þetta lið er ólíkt Steingrími ekki tilbúið til að svíkja lit og snúa baki við eðli sínu. Þingheimur mun aldrei afneita blóðinu sem rennur um æðar hans og kúga Íslendinginn innra með sér til hlýðni.
Við erum þjóð illa þokkaðra rusta. Sjálfhverf og að drepast úr sérgæsku gefum við skít í umheiminn og allt það hyski sem telur sig getað kúgað okkur til hlýðni. Við látum engan eiga neitt inni hjá okkur. Einfaldlega vegna þess að við bara hirðum það skuldlaust og gefum fjendum okkar fingurinn. Þessi Gordon Brown virðist halda að Hjallastefna Möggu Pálu hafi verið við lýði frá landnámi og hér hafi okkur verið kenndir mannasiðir með bóndabeygjum og járnkrumlum í silkihönskum lengur en elstu menn muna. Ó nei, Gordon minn. Við erum enn ótamdir afkomendur siðlausra sauðaþjófa og við borgum ekki.
Aldrei!
Blogg
Sauðaþjófar borga ekki
08:43 › 30. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
