ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Kínverjar eru klikk

07:57 › 3. júní 2009

Svarthöfði er mjög vel meðvitaður um að þeir í Kína hugsa eftir allt öðrum brautum en Vesturlandabúar og skilur þess vegna mæta vel að stundum verði núningur á milli ólíkra menningarheima. Þannig eigum við það til að hnýta í Kínverja fyrir að vera ekki enn búnir að drösla sér á bak mannréttindamerinni sem þykir mjög móðins á öndverðri 21. öldinni. Þar sitjum við framarlega og hossum okkur að sjálfsögðu eftir því um leið og við potum í Kínverja fyrir að vera alltaf að pynta fólk og endalaust að taka fólk af lífi fyrir hinar og þessar sakir, mis léttvægar. Sjálfsagt finnst Kínverjum við standa okkur afar illa í að ritskoða internetið og hengja glæpamenn en þeir láta þó eiga sig að nudda okkur upp úr vestrænni linkind okkar.

Þeir geta hins vegar endalaust látið fara í taugarnar á sér hverjum við bjóðum til landsins að skoða Gullfoss, Geysi og baða sig í Bláa lóninu. Þannig eiga Kínverjar það til að ganga gersamlega af göflunum ef hingað til lands villast stjórnmálamenn eða bissnisskallar frá Taívan. Og nú eru þeir alveg froðufellandi yfir því að hinn góðlegi Dalai Lama skuli fá að spóka sig hér um í kuflinum sínum. Kínverjarnir eru svo saltvondir yfir því að tveir minniháttar ráðherrar á plani og tvær þingmannstuskur hafi sýnt af sér þann manndóm að funda með búddamunkinum glaðlega að nú hringsnýst sendiherra þeirra í kringum sjálfan sig og veit ekki hvort hann er að koma eða fara.

Kínverjunum nægir ekki að forseti vor og sérstakur mannréttindafrömuður hafi flúið Dalai Lama til útlanda og að utanríkisráðherrann síkáti hafi kosið að gera slíkt hið sama. Einhverjir myndu nú segja að þessir tveir fyrrum kommúnistar hefðu þarna „dissað“ Dalai Lama svo hressilega að Kínakallarnir ættu að brosa hringinn frekar en að fríka út í gerræðsilegum tryllingi. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra eru ásamt Ólafi Ragnari og Össuri Skarphéðinssyni í þeim þrönga hópi Íslendinga sem óttast Kínverja og hafa einnig komið sér undan því að hitta hans glaðlega heilagleika.

Kínverjum nægir samt engan veginn allt þetta „diss“ æðstu postula íslenskrar stjórnsýslu. Kannski vegna þess að hinn ofuræðrulausi Dalai Lama kippti sér ekkert upp við þennan dónaskap og brosti bara enn breiðar til Ögmundar og Katrínar Júlíusdóttur. Sjálfsagt hefur Dalai líka bara miklu frekar viljað hitta Birgittu Jóns og Bjögga G. en Jóhönnu og Steingrím. Dalai Lama fær örugglega allt sem hann vildi fá út úr þessari Íslandsheimsókn sinni og góðar líkur eru á að hann hafi auðgað tilveru þeirra sem þorðu að hitta hann. Dissararnir hafi því fyrst og fremst gert lítið úr sjálfum sér þar sem hver heilvita maður hefði getað sagt sér að Kínverjarnir myndu brjálast alveg óháð því hvort allir eða enginn hefði farið til fundar við Dalai Lama.

Svarthöfði ætlar bara að leyfa sér, og taka sjensinn á því að vera sagður fordómafullur, og segja það hreint út, eins og Steinríkur um Rómverjana forðum, að Kínverjar eru klikk. Hvernig getur nokkur sála látið hann Dalai fara svona svakalega í taugarnar á sér? Hann er svolítið eins og Sjapplín. Lítill, fyndinn, mátulega skrítinn kall sem kallar fram bros og gleði bara með því einu að láta sjá sig. Þeir sem láta menn eins og Sjapplín og Dalai fara í taugarnar á sér eru klikk og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að gera lífið leiðinlegra. Ólíkt Dalai og Sjapplín.

Fyrst Kínverjar vilja endilega ráðskast með það hverjir fá að sækja Ísland heim spyr Svarthöfði sig hvers vegna þeir létu það til dæmis óátalið að hingað kæmi saurugi og sílspikaði klámkóngurinn Ron Jeremy og hæfileikalausa, karlrembusvínið Rob Schneider. Hvar voru Kínverjar þá? Hefði ekki verið nær að kalla sendiherrann heim þegar konungar lágkúrunnar komu hingað og fengu höfðinglegri móttökur en þessi vinalegi boðberi ástar og friðar?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?