Svarthöfði hefur lengi rannsakað þann gerviveruleika sem fyrirtæki reisa í kringum ímynd sína til að tæla almenning til fylgis við sig. Sum slagorðin reynast nefnilega vera hrein andstæða við raunveruleikann.
„Virðing, réttlæti“ eru til dæmis einkennisorð verkalýðsfélagsins sem hefur sýnt mesta virðingarleysi og óréttlæti allra verkalýðsfélaga. Gunnar Páll Pálsson, formaður Virðingar/réttlætis, ákvað að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna Kaupþings á sjálfkúlulánum sem ætlað var að blekkja upp hlutabréfaverð. Sjálfur sýndi hann umbjóðendum sínum, búðarstarfsmönnum, þá fádæma virðingu að taka sér bankastjóralaun sem eru margföld á við laun búðarstarfsfólks. Hans laun hækkuðu um 63% á meðan fólkið sem hann sýndi virðingu og réttlæti fékk bara 14% hækkun. Ef slagorðið hefði verið satt hefði það verið óvirðing og óréttlæti.
KB banki skreytti sig með fullyrðingunni „traustur banki“. Eftir að hann fór á hausinn í haust lærðu allir að þetta var í reynd ótraustur banki. Og kannski meira eins og vogunarsjóður en banki.
Landsbankinn var einna snjallastur í sínum áróðri þegar hann fullyrti að viðskiptavinir fengju „aukakrónur, þær koma bara“. Í sjónvarpsauglýsingunum mátti sjá að taumlausar aukakrónurnar hundelta saklaust fólk á götum úti og sitja um það á vinnustöðum. Nú er ljóst að þessar sturluðu aukakrónur komu frá Hollandi, Bretlandi og jafnvel Finnlandi, í 650 milljarða króna heimsyfirráðaplotti sem heitir Icesave.
Sparisjóðurinn Byr er einna kræfastur. Á sama tíma og hann auglýsti að takmark hans væri „fjárhagsleg heilsa“ viðskiptavina sinna stundaði hann fjárhagslegt fjöldamorð á þeim. Hann hækkaði húsnæðislán fólks um 20% á einu ári.
Glitnir hafði álíka ósvífna nálgun þegar hann fullyrti: „Fjárhagsleg velgengni þín er okkar verkefni.“ Hvers vegna er Glitnir þá að hirða íbúðir og bíla af fjölda viðskiptavina, þegar þeir gátu ekki lengur borgað lánin sem hann hækkaði? Það mætti halda að verkefni bankans hafi þvert á móti verið að svipta fólk eignum sínum. Enda er sannleikurinn um banka sá að þeir græða á að taka eignir af fólki. Glitnir má eiga það að hann sagði sannleikann af gáleysi árið 2006, þegar hann fór í samstarf við Krabbameinsfélagið undir slagorðinu: „Hættan er ljós.“
Blogg
Vitlaus slagorð!
10:10 › 26. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
