Þrátt fyrir að hafa verið klappaður upp þrisvar á fundi sjálfstæðismanna í Kópavogi var Gunnar Birgisson þvingaður til að víkja úr bæjarstjórastólnum í vikunni. Svarthöfði fær engan botn í það hvernig flokkur getur svikið leiðtoga sinn með þessum hætti. Eina ástæðan fyrir því að Gunnari var fórnað var að annars myndi flokkurinn falla úr meirihluta í bæjarstjórn. Með öðrum orðum fórnuðu peðin í Sjálfstæðisflokknum kóngi sínum vegna valdagræðgi sinnar. Enda varð eitt peðið, Gunnsteinn Sigurðsson, að drottningu, ef svo má segja. Refskákin í Kópavogi er mögnuð.
Upphafið að því að peðin fórnuðu kóngi var stórfellt og þaulskipulagt samsæri Samfylkingarinnar, fjölmiðla, Lánasjóðs íslenskra námsmanna, Deloitte og Fjármálaeftirlitsins gegn Gunnari. En eins og Gunnar sagði sjálfur var skýrsla Deloitte „drasl“, Fjármálaeftirlitið ætti að einbeita sér að stærri hlutum en hans glæpum, fjölmiðlar vilja bara dæma hann og Samfylkingin stundar „skítapólitík“. Þarna hlýtur að hafa verið um að ræða umfangsmesta samsæri Íslandssögunnar, líkt og Gunnar lýsir best sjálfur: „Ég tel þetta nú svona nálgast sko brjálæði í ofsóknum og þetta var greinilega mjög vel skipulagt og þeir hafa náð árangri sem stóðu bak við þetta.“
Almenningur í Kópavogi stendur þétt á bak við konung sinn. „Þetta er besti maður held ég bara,“ sagði einn Kópavogsbúinn við Stöð 2 í síðustu viku. „Þessi maður hefur gjörbylt og breytt Kópavogi,“ sagði annar. „Hann hefur bara staðið sig svo vel,“ sagði kona, sem þótti þetta „hræðilegt“. Enn einn sagði miður sín: „Hann er bara búinn að gera svo mikið fyrir félagið eða fyrir bæinn.“
Meira að segja Gunnar Þorsteinsson í Krossinum hefur veitt nafna sínum syndaaflausn. Það var bara fínt hjá honum að hjálpa dóttur sinni, sagði þessi sonur Guðs. Táraflóðið í Kópavogi er svo mikið að það nálgast syndaflóð. „Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, er mikill maður,“ skrifaði Elín Þórðardóttir forstjóri í Morgunblaðið, Gunnari til stuðnings.
Svarthöfði beygir af vegna brottvikningar hins elskaða leiðtoga og finnur sig knúinn til að brynna músum, hrópandi í geðshræringu og ótta hins týnda sauðs: Ekki fara, Gunnar. Þú hefur aldrei látið siðferðið tefja þér för. Kópavogsbúar hafa kosið þig til metorða og eiga skilið að þú haldir áfram!
Blogg
Ekki fara, Gunnar!
08:01 › 24. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
