ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Húsbrot

07:43 › 19. júní 2009

Orðið húsbrot fékk alveg nýja merkingu 17. júní þegar óðalsbóndi á Álftanesi sótti sér skurðgröfu og braut og bramlaði íbúðarhús sem hann hafði misst í hendur bankans síns. Húsið hafði hann byggt með eigin höndum og kaus að rífa það sjálfur frekar en horfa á eftir því í fasteignasafn bankans.

Óhætt er að segja að blessaður maðurinn hafi slegið í gegn með þessu uppátæki sínu og þrátt fyrir að um skýlaust lögbrot sé að ræða nýtur hann samúðar fjöldans enda eru þeir líklega vandfundnir Íslendingarnir sem bera hlýjan hug til banka þessa dagana. Og breytir þá engu hvort bankarnir kalli sig skilanefndir eða beri forskeytið „nýi“.

Drjúgum fjölda fólks, sem nú leigir sér þak yfir höfuðið af bönkunum eftir að lán þess urðu óyfirstíganleg, finnst sjálfsagt bankarnir hafa gert sig seka um húsbrot og sér því eitthvert dásamlegt ljóðrænt réttlæti í því að húseign peningastofnunar hafi fallið fyrir hendi fyrri eiganda sem koxaði eftir efnahagshrunið.

Svarthöfði sér húsbrotið á Álftanesi fyrst og fremst sem gjörning. Einhvers konar listaverk sem á miklu frekar erindi á tvíæringinn í Feneyjum frekar en einn vitleysingur að mála annan í sundskýlu á hverjum degi í hálft ár. Rústirnar á Álftanesi með númerslausan bíl í ómerktri gröf sem toppaði alveg takmarkalausa snilldina er listaverk sem allur almenningur skilur. Það er táknrænt á svo mörgum plönum og höfðar til skynjunar, skynsemi og óheflaðra tilfinninga. Brakið á Álftanesi er jafnrökrétt framhald af „Helvítis, fokking fokk“ og Rocky III var af Rocky II.

Þrátt fyrir að almenningi virðist yfirleitt finnast húsbrotið bráðsniðugt eru auðvitað ekki allir á einu máli og eitthvað er verið að hártogast um hversu skynsamlegt þetta var. Hvort þetta sé réttlætanlegt og hvort þetta sé til eftirbreytni. Einhverjir óttast meira að segja að þetta verði að álíka trendi og að berja búsáhöld þannig að hér sé umhverfisslys í uppsiglingu. Að hvert sem litið verði muni húsarústir blasa við eftir því sem fleiri heimili falla bönkunum í skaut.

Svarthöfði hugsar ekki eftir þessum brautum og honum er nákvæmlega sama hvort gjörningurinn á Álftanesi sé upphafið að einhverju eða endir. Í bókum Svarthöfða skiptir það engu máli enda metur Svarthöfði hluti og fólk bara út frá því hvort þeir séu hallærislegir eða töff. Og húsbrotið á Álftanesi var mjög töff.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?