ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Kerfisvillingarnir

08:07 › 12. júní 2009

Svarthöfði er einföld sál og bjartsýnn eftir því. Þess vegna batt hann til að byrja með vonir við að upp úr rústum efnahagshrunsins myndi rísa nýtt, betra og heilbrigðara samfélag. Íslenska kunningja- og vinaspillingin sem hefur gegnsýrt allt kerfið komst í þrot og því komnar fínar forsendur til þess að hverfa aftur á byrjunarreit. Svarthöfði vanmat samt auðvitað styrk kerfisins sem er ódrepandi. Spillingarkerfið hrundi aldrei. Það hökti aðeins um stund en eftir að Búsáhaldabyltingin fjaraði út og æstur múgurinn fékk helstu kröfum sínum framgengt náðu kerfismaurarnir vopnum sínum og hafa nú sem fyrr tögl og hagldir.

Kosningarnar breyttu engu þar um enda leiða skilgetin afkvæmi kerfisins nýja ríkisstjórn og þráast við að stokka spilin, gefa upp á nýtt og skilja þá út undan sem hafa safnað spiki við kjötkatlana í gegnum áratugina. Líf allra Íslendinga hefur breyst til hins verra en kerfið er við hestaheilsu og dafnar í skjóli máttlausra yfirvalda, áhugaleysis á því að rannsaka málin af alvöru og draga seka til ábyrgðar.

Eina ljósglætan í svartnættinu nú er Eva Joly, þessi öfluga og beinskeytta kona, sem bauðst til þess að kenna kerfiskúguðum molbúum að rannsaka íslenska stórglæpi og fokdýr afglöp á heimsmælikvarða. Eva minnir Svarthöfða um margt á Tinu Turner. Ekki beinlínis í útliti en rétt eins og Tina er amma rokksins er Eva amma allra efnahagsbrotarannsókna og því var alveg eitursnjallt hjá Agli Helgasyni að lokka Evu, við annan mann, til landsins.

Það er að segja þetta hefði verið snilldarbragð ef kerfið hefði ekki verið búið að ákveða fyrirfram að beita öllum sínum klækjum og áhrifum til þess að leggja björg í götu Evu og bregða fyrir hana fæti. Nú er allt reynt til þess að gera þessa snjöllu konu tortryggilega og þar fara vitaskuld fremstir í flokki lögfræðingar. Eðlilega þar sem lögfræðingagerið vann allt meira og minna fyrir útrásina, veit upp á sig skömmina og vill allt til þess vinna að ófrægja Joly og losna við hana úr landi.

Þessir illverkasnatar kerfisins seilast meira að segja svo langt að nú bera þeir út sögur um að Eva sé meira fyrir að gutla í koníaki en þefa uppi rafræn fingraför á stórkostlegum verðmætaflutningum úr landi. Þetta er óttalega sveitalegur rógburður og dæmigert fyrir íslenska plebba að reyna að gera veraldarvana parísardömu tortryggilega með svona slúðri. Allir heimsborgarar sjá að auðvitað kann Joly að meta fínar veigar en það gerir hana ekki verri. Hún hefur bara meiri stíl en afkomendur sauðaþjófa sem hrjóta í fínustu óperuhúsum heims og fá meltingartruflanir af gulláti.

Sem betur fer virðast launráð lögfræðinganna ekki ætla að bíta á Evu og Svarthöfði lifir enn í voninni um að hér megi rísa nýtt og heilbrigðara samfélag án þess að blása þurfi til byltingar sem mun kosta mannslíf. Til þess að forða okkur frá þessu þarf bara að einangra alla sveittu kerfispungana, taka þá úr umferð og gelda og leyfa Evu að ganga lausri í því sem þá getur síðar orðið Paradís.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?