ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Bikiní og margarítur

18:29 › 10. júní 2009

Ó, hve ljúft lífið getur verið þegar maður er með fúlgur fjár og þarf ekki að vera feiminn við að láta sig dreyma? Hversu dásamlegt það getur verið að lifa hinu góða lífi, verandi á sólarströnd afskekktrar eyju, með margarítu í hendi og bikiníklæddar fegurðardísir fyrir augum sér? Og er nema von, þegar hugurinn reikar þangað, að einhver smáatriði kunni að gleymast, eins og trygg ávöxtun fjár og stöðug fjármögnun skuldbindinga sinna.

Hið lífsglaða blað Landsbankans, Moment, er uppfullt af þessum augnablikum sem færðu okkur heim sanninn um að veröldin væri dásamleg og að okkur væru allar leiðir færar. Hversu björt var ekki framtíðin? Átti vöxtur hins íslenska bankakerfis, innanlands og utan, nokkurn tímann eftir að gera annað en að verða hraðari og meiri? Setja ný met í hagnaði og útþenslu? Var nokkur leið til að við gætum villst út af hinni beinu og breiðu braut sem lá rakleiðis að stjarnfræðilegum auðævum og munaðarlífi sem maður hefði fyrirfram vart getað ímyndað sér? Lífi þar sem voru ekki fengnir plötusnúðar eða gítarglamrarar í afmælið og áramótaveisluna heldur heimsfrægar stórstjörnur? Gat lífið nokkuð annað en orðið sífellt betra og betra? Varla!

Eða eins og lesa mátti í DV í gær um viðtal við Bretann Simon Healy, sem var yfirmaður innlána hjá Heratible. Hann var verkefnastjóri yfir Icesave-reikningunum. Það lýsir kannski tíðarandanum að í viðtalinu var hann ekkert spurður út í starfsemi Icesave, þessa mikla ævintýris sem átti að bjarga Landsbankanum úr erfiðleikum versnandi endurfjármögnunar - án þess að nokkrum kæmi í hug að það gæti haft slæmar afleiðingar. Í síðustu spurningunni var hann spurður hvað hann myndi gera ef hann myndi vinna í lottó. Hann sagðist ekki vera viss. „En það myndi tengjast eyju, bikiníum og alveg hellingi af margarítum!“

Bikiní og margarítur! Hvað getur toppað þetta? Þegar maður hefur unnið samviskusamlega og ötullega að nýjasta ævintýri fjármálaheimsins - sem hlýtur að vera nokkurn veginn eins og að vinna í lottóinu - er ekki hægt annað en að fá að njóta lífsins. Vissulega er gott að græða á daginn og grilla á kvöldin. En það er samt svo miklu betra að stinga af í smástund, finna sólríka eyju í Karíbahafinu þar sem er nóg af góðum drykkjum og föngulegum konum.

Nema hvað öll ævintýri taka enda. Bikiníin og margaríturnar hverfa, sólríku eyjarnar með hagstæðu skattalöggjöfina virðast sífellt fjarlægari og verst af öllu er að fólk fer að skamma mann fyrir að hafa klúðrað hlutunum, jafnvel teflt fjárhagslegri framtíð heillar eyþjóðar í tvísýnu. Já, það er vandlifað í henni veröld.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?