Svarthöfða hefur lengi gramist af hve mikilli ragmennsku fréttastofa ríkisútvarpsins og -sjónvarpsins hefur gengið fram í fréttaflutningi sínum á síðustu mánuðum. Á meðan flestir aðrir helstu fréttamiðlar hafa hamast við að „skúbba“ feitum fréttum um styrki til stjórnmálaflokka og -manna og óeðlilega viðskiptahætti og stórfellt sukk sem viðgekkst í gömlu bönkunum og stórfyrirtækjum landsins hefur ríkisfjölmiðillinn að mestu haldið að sér höndum og látið aðra fjölmiðla um að opna stóru og viðkvæmu málin í samfélaginu. Eftir það hefur RÚV svo byrjað að gæla við málin án þess að eiga á hættu að glata hinum heilaga trúverðugleika sínum.
Svarthöfða finnst að með þessari ragmennsku sé ríkisfjölmiðillinn að bregðast lögbundnu eftirlitshlutverki sínu.
Svarthöfði telur þetta þó ekki vera áfellisdóm yfir hinum fjölmörgu fréttamönnum stöðvarinnar. Síður en svo. Miklu frekar ber þessi linkind miðilsins vott um úrelta og árangurslitla fréttastefnu stöðvarinnar sem ætti að hafa dáið út hér í den tid. Í stað þess að kyngja trúverðugleikakreddunni og reyna að stinga á kýlum samfélagsins með öllum tiltækum vopnum fetar RÚV þá aumu leið að sækja sínar fréttir og trúðverðugleikann til annarra kjarkmeiri miðla sem hafa tekið upp beittari fréttastefnu en kranablaðamennsku ríkismiðilsins. Þessi trénaða fréttastefna er fótakefli fyrir alla þá hæfu starfsmenn stöðvarinnar sem gætu gert svo miklu meira ef þeir fengju óheftara frelsi til að leita sannleikans og grafa upp skítinn í samfélaginu. En nei: RÚV birtir ekki fréttir nema þær byggist á „opinberum“ gögnum eða sem aðrir miðlar hafa áður sagt. Með þessu móti sækja þeir sér trúðverðugleikann yfir lækinn og er ekki nema von að fólk treysti miðli vel sem einbeitir sér fyrst og fremst að því að segja gamlar og annarra miðla fréttir. RÚV getur ekki tekið þátt í alvöru fréttaöflun í landinu fyrr en það kastar af sér spennitreyju hefðarinnar.
Af „stóru“ fréttamálunum sem eru Svarthöfða ofarlega í minni sagði RÚV ekki frá neinu þeirra fyrst fjölmiðla. Til að mynda sagði Mogginn fyrst frá milljarðaláni Kaupþings til sjek al-Thanis og afskriftum lána hjá starfsmönnum þessa sama banka; Stöð 2 sagði okkur frá háum styrkjum Landsbankans og FL-Group til Sjálfstæðisflokksins og náði fyrst fjölmiðla tali af Íslendingnum sem handtekinn var með kókaín í Brasilíu og DV sagði landsmönnum svo fyrst frá milljóna styrkjum Baugs og FL-Group til prófkjörsframbjóðenda og loks frá fjáraustri Gunnars Birgissonar til dóttur sinnar af almannafé.
En hvar er RÚV? Stöðin þorir ekki að reyna að afla slíkra frétta heldur hangir heimóttarlega á bak við hina fjölmiðlana og segir svo þeirra gömlu fréttir þegar stofnunin telur upplýsingarnar tryggar. Meginmarkmiði fréttamennsku alls staðar í heiminum virðist því ekki vera fylgt á RÚV: að aðeins nýjar fréttir séu eiginlegar fréttir. RÚV mun bara halda áfram að bregðast eftirlitshlutverki sínu ef stöðin heldur áfram að lóna bara í kjölfari annarra og nærast á vinnu þeirra af ótta við að skerða eigin trúverðugleika.
Blogg
RÚV stelur trausti
08:14 › 26. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
