ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Norska plottið

08:31 › 19. maí 2009

Svarthöfði er vel lesinn í heimspeki lífs og dauða og er löngu kominn handan góðs og ills í lífsskilningi sínum. Svarthöfði veit því að sú tilhneiging að flokka fólk ýmist í gott eða illt er meira en úrelt. Hún hefur einfaldlega aldrei átt við vegna þess að fólk er hvorki gott né illt. Fólk er annaðhvort leiðinlegt eða skemmtilegt og þess vegna hefur Svarthöfði frá blautu barnsbeini haft illan bifur á Norðmönnum. Þeir eru ekkert endilega vondir en almannarómur um alla álfuna og langt út fyrir hana segir að Norðmenn séu allra þjóða leiðinlegastir. Þar með er auðvitað sjálfgefið að þeir eru alger andstæða Íslendinga sem eru allra þjóða skemmtilegastir, ósvífnastir, áræðnastir og áhættusæknastir á meðan Norðmenn eru varkárir, kurteisir og áhættufælnir.

Þessi munur kristallast meðal annars í meðferð þessara þjóða á auðlindum sínum. Íslendingar eru nú þegar byrjaðir að spandera olíugróðanum sínum í huganum löngu áður en einum einasta dropa hefur verið pumpað upp á Drekasvæðinu. Norðmenn eru hins vegar svo miklar kellingar að þeir hafa alla tíð lagt olíugróðann sinn inn á bankabók í einhvern olíusjóð. Sjóð sem er nú svo digur að Norðmenn þurfa ekki að hafa áhyggjur af heimskreppunni. Er nokkur furða að við skulum hafa sagt skilið við þessa sparigrísi á sínum tíma og sest að hér á Klakanum?

Norðmenn hafa aldrei fyrirgefið forfeðrum okkar sem höfðu vit á því að stinga af úr leiðindunum. Þess vegna eru Norsararnir alltaf eitthvað að plotta gegn okkur. Þeir þreyttust ekki á að bögga okkur í Smugunni og stálu nú síðast af okkur sigrinum í Eurovision. Verst bara að Íslendingar eru svo vitlausir og ægilega ánægðir með annað sætið að þeir samgleðjast „frændum vorum“ í stað þess að kæra það til æðstu dómstóla að Norsarar hafi teflt fram sykursætum Hvít-Rússa til að hafa sigurinn af Jóhönnu okkar.

Svarthöfði skilur ekkert í því að helmingur þjóðarinnar sé skjálfandi á beinunum yfir Evrópusambandinu og telji okkur betur borgið í örmum þessarar leiðindaþjóðar. Norðmenn eru búnir að koma sínum manni fyrir í Seðlabankanum og ásælast nú olíuna sem við eigum kannski á Drekasvæðinu og fólki finnst það bara í góðu lagi. Samt stafar okkur miklu meiri hætta af frændunum sem eru alltaf frændum verstir en bákninu í Brussel. Norðmenn hafa reynt að planta flugumönnum sínum á Íslandi á sama hátt og hryðjuverkamenn gera sitt sjálfsmorðsárásalið út og láta aðlagast vestrænum samfélögum. Síðan spretta þeir upp þegar síst skyldi og gera óskunda. Þessa hugmyndafræði hafa Norðmenn virkjað á Íslandi og allt hlýtur þetta að miðast að því að ná okkur aftur undir stjórn konungs.

En sagan er ekki öll sögð og Svarthöfði fékk hland fyrir hjartað um helgina þegar hann las einlæga játningu sjónvarpsmannsins ástsæla Egils Helgasonar á bloggi hans. Þar upplýsti Egill að hann væri 1/4 Norðmaður!!!!!! Maðurinn sem mótar og stýrir allri þjóðmálaumræðu í landinu er Norsari. Í ljósi þessa veit Svarthöfði nú að Agli gekk ekki bara gott eitt til þegar hann seldi íslenskum stjórnvöldum hina hálfnorsku Evu Joly til þess að gramsa í bókhaldi útrásarmannanna okkar. Þetta er bara enn einn liður í norska plottinu gekk Davíð Oddssyni sem hefur í aðmírálsdressi Hannesar Hafstein barist gegn þessu samsæri með heimastjórnarhirð sinni.

Hingað til hefur Svarthöfði verið temmilega rólegur gagnvart norsku njósnurunum þar sem hann hélt að það væru bara Geir Haarde og Siv Friðleifsdóttir sem væru skörpustu hnífarnir í þeirri skúffu. En, ónei! Þar er líka Egill Helgason og drengurinn sá er skeinuhættari en Geir og Siv vegna þess að ólíkt þeim þá hlýðir þjóðin Agli.

Játning Egils kom í miðjum Eurovision-brímanum þegar hann gleymdi því að hér á landi skammast maður sín fyrir að vera Norsari. Þetta eru samt þarfar upplýsingar og í nafni opins samfélags þar sem allt er uppi á borðinu skorar Svarthöfði á alla Norðmenn sem hér leynast undir fölsku flaggi að stíga fram.
Þetta verðum við að fá að vita rétt eins og hverjir eiga Jöklabréfin. Kæmi ekki á óvart þótt Norðmenn ættu megnið af þeim árans pappírum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?