Íslendingar ýmist elska Evrópusambandið eða elska að hata það og svosem allt í góðu með það. Það er gott að elska og enn betra að hata. Það veit Svarthöfði manna best. Svarthöfði fær hins vegar ekki með nokkru móti skilið hvernig þjóð sem aldrei mun komast að ásættanlegri niðurstöðu í Evrópumálum skuli geta sameinast um að míga árlega á sig af spenningi yfir Júróvisíjón-söngvakeppninni. Þá keppni elskar fólk líka að elska eða hata, munurinn á henni og sambandinu er bara sá að samt vilja allir vera með.
Keppnin er sjálfsagt það sorglegasta og viðbjóðslegasta sem komið hefur frá sameinaðri Evrópu frá því íbúar álfunnar ákváðu að hætta að slátra hver öðrum í heimsstríði og ganga frekar í þjóðasamband. En öllum finnst bara í góðu lagi að þjóðir Evrópu skuli koma saman árlega og tjalda öllu sínu versta þegar kemur að söng, sviðsframkomu og almennu velsæmi.
Júróvisíónsöngvakeppninn er samt áþreifanlegasta dæmið um hversu hörmulegar afleiðingar það getur haft að þjóðir álfunnar taki höndum saman en samt hefur Halli Hallssyni, Ragnari Arnalds, Davíð Oddssyni og öllum hinum ESB-höturunum ekki dottið í hug að benda á þessa staðreynd í áróðri sínum gegn sambandsaðild. Ástæðan er auðvitað einfaldlega sú að allir plebbarnir sem eru á móti aðild þrá ekkert heitara en að sjá fulltrúa þjóðar sinnar sigra í þessari keppni. Og sama er að segja um elítuna sem ætti auðvitað að snúa upp á sig og fordæma keppnina fyrir hallærislegheit. Hún elur þennan sama draum í brjósti sér.
Sé það virkilega svo að allar hinar þjóðirnar, sem við erum nógu fín til að syngja með en ekki til að deila með stærri hagsmunum, vilji virkilega fá okkur í ESB-klúbbinn er hægur vandi að höggva á hnútinn. Þótt við munum aldrei geta sameinast um ESB höfum við fyrir lifandis löngu sameinast um Júróvisjón. Þess vegna þarf bara eina tilskipun frá Brussel þess efnis að aðeins þjóðir í ESB fái að taka þátt í Júróvisjón. Þá munu Íslendingar, elítistar og plebbar í einni fylkingu með Jón Bjarnason fremstan í flokki, ryðjast inn í bandalagið með ótrúlegu offorsi. Og Norðmenn og Ísraelar munu auðvitað fara sömu leið.
ESB twelve points!
Blogg
Júróvisjónbandalagið
10:20 › 15. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
