ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Geirvarta Steingríms J. - myndir

10:53 › 13. maí 2009

Það telst jafnan fréttnæmt þegar geirvörtur landskunnra manna líta dagsins ljós. Steingrímur J. Sigfússon var áhyggjulaus úti á tröppum Stjórnarráðsins með geirvörtu, sem sést á meðfylgjandi sviðsettri mynd. Að auki var Steingrímur með þéttan pakka og þykir það fréttnæmt þegar þéttur pakki einhvers stelur senunni.


Vísir.is, fréttavefur Stöðvar 2 og Fréttablaðsins, hefur staðið sig einstaklega vel í uppljóstrunum undanfarið. Þar sem Svarthöfði er unnandi hins nakta og tæra sannleika verður hann sem útsprungið blóm á nærandi rigningardegi þegar hann hefur lesið skúbbin á vefnum, og ekki síst séð myndirnar til staðfestingar.











Fjölmargar fréttir Vísis birtast hvergi annars staðar. Svo virðist sem sannleikurinn eigi ekki upp á pallborðið hjá öllum hliðvörðum fjölmiðlanna. Honum er markvisst stungið undir stól. Meðal frétta sem hvergi hafa birst annars staðar í hérlendum miðlum eru









„Stinnur bossi Lopez - myndir“, „síðar naríur Brigitte - myndir“, „Rihanna verslar með brjóstaskoru - myndir“ og „Geirvarta Natalie Portman - myndir“. Í umfjölluninni um Jennifer Lopez var greint frá því að hún væri með stinnan bossa og myndir birtar því til sannmælis. „Síðar naríur Brigitte“ ljóstraði því upp að leikkonan sem lék eiginkonu andstæðings Rockys í samnefndri kvikmynd væri í síðum nærbuxum, líkt og sást á meðfylgjandi ljósmyndum frá einstöku sjónarhorni upp í klof hennar. Í fréttinni um Rihönnu sást að hún var að versla með þeim hætti, að unnt var að greina að hún hefði brjóstaskoru meðferðis á bringu sér.

Fréttin um Natalie Portman hófst svo: „Það telst fréttnæmt þegar frægar geirvörtur birtast umheiminum eins og í tilfelli Natalie Portman.“ Myndefnið sýndi síðan svo ekki varð um villst að það mátti greina geirvörtu á barmi hennar. Fréttin rifjaði upp fyrir Svarthöfða, að svipað hefði verið ástatt hjá leikkonunni Claire Daines 6. maí síðastliðinn. Þann daginn birti Vísir fréttina  „Geirvarta Claire Danes - myndir“ sem hófst svo: „Þegar geirvörtur fræga fólksins líta dagsins ljós telst það fréttnæmt. Á meðfylgjandi myndum má sjá aðra geirvörtu leikkonunnar Claire Danes þegar hún yfirgefur gleðskap.“

Skömmu eftir alþingiskosningarnar náði Vísir.is að kafa dýpra, en nokkur annar fjölmiðill hér á landi, fyrr og síðar. Í fréttinni „Túrtappi Britney - myndband“ voru birtar hreyfimyndir frá þröngu sjónarhorni sem leiddu berlega í ljós að söngkonan Britney Spears var með túrtappa nærri kynfærunum.
Það er rétt að taka fram að hér er einungis tiltekið lítið úrval frétta Vísis síðustu tvær vikur. Óupptaldar eru fréttir eins og „Stinnur afturendi Hayek - myndir“ og „Naríur Joss Stone - myndir“, þar sem segir meðal annars: „Það telst fréttnæmt þegar undirfatnaður fræga fólksins stelur senunni.“

Í spillta góðærinu á Íslandi voru erlendir fjölmiðlar þeir einu sem lögðu sig fram um að ljóstra upp sannleikanum um ástandið. Nú virðist hið sama uppi á teningnum. Vísir tekur íslenskan veruleika nefnilega ekki sömu tökum. Svarthöfði telur sér ljúft og skylt að rjúfa þá þöggun sem á sér stað á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Því ríður hann á vaðið með óritskoðaða fregn héðan innanlands, til að eggja innlenda fjölmiðlun.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?