ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Ljúfir og hrjúfir

14:38 › 3. apríl 2009

Veturinn sem nú er loks á undanhaldi er einhver sá versti, þunglyndislegasti og leiðinlegasti í manna minnum. Veðrið hefur verið frekar skítt en þau leiðindi gleymdust eiginlega í efnahagshrunadansinum og öllu því svartagallsrausi sem við höfum mátt kyngja síðan í september þegar allt hér fór lóðbeint til helvítis. Svarthöfði hefur ekki getað á sér heilum tekið í kuldanum og kreppufarginu. Hefur setið sem lamaður með hendur í skauti og beðið þess að vont versni.

Síðan gerðist það loks í vikunni að Svarthöfði reis upp frá andlegum dauða enda ekki seinna vænna. Páskarnir á næsta leiti og svo kom blessað vorið í vikunni. Svarthöfði var farinn að trúa því að kjarnorkuvetur hefði komið í kjölfar efnahagshörmunganna og hann myndi framvegis lifa í kulda og myrkri.

En sjá! Vorið er komið og vorboðarnir streyma nú fram eins og sprækir lækir. Vinalegi veðurkallinn hann Siggi Stormur hefur lýst því yfir að vorið sé loksins komið og færði þau einföldu rök máli sínu til stuðnings að mars væri vetrarmánuður en apríl vormánuður. Einfalt.

Svarthöfði hefur ekki enn hvorki heyrt né séð lóu. Og þó. Kannski hefur hann gert það hann bara þekkir ekki fuglinn í sjón og veit ekki hvernig hann hljómar. Hins vegar þeyttist lögga á mótorhjóli fram hjá Svarthöfða í fyrradag. Jafnhrjúfur vorboði og lóan er ljúf en um leið og okkar traustu laganna verðir eru komnir í leðrið má bóka að sumarið er handan við hornið.

Með vorinu kemur vonin og Svarthöfði sér það nú að það er galið að leggja upp laupana þótt krónan sé í fokki og gjaldþrotaauðmaður á asna klyfjuðum skuldavafningum komist fyrr í gegnum gullna hliðið en evran til Íslands. Það er enn Prins Póló í sjoppunum og fiskur í sjónum þannig að þetta reddast.
Svarthöfði hefur ekki enn heyrt símastaura syngja en er það ekki enn betri vorboði að hafa heyrt þingmann syngja þótt falskur sé? Sjálfsagt veit enginn betur en einmitt Árni Johnsen að í lífsins melódíu koma drungalegir kaflar og falskar aríur en er það ekki einmitt það sem gerir þetta svo æðislegt? Merking þrífst á andstæðu sinni og þegar vetur víkur fyrir vori hljótum við að sjá að þrátt fyrir kreppu, eymd og blankheit er lífið yndislegt.

Halló heimur!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?