Ef fer sem horfir verður árangur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs eitt allsherjar efnahagsundur. Ísland undir stjórn vinstri-grænna verður fordæmalaust hagkerfi sem brýtur aftur fyrri hugmyndir hagfræðinga heimsins.
Nú þegar 10 fyrirtæki fara á hausinn á degi hverjum, tekjur ríkissjóðs hrynja, útgjöld ríkissjóðs rísa, skuldir þjóðarbúsins nema á bilinu einni til tveimur billjónum og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn krefst hrikalegs niðurskurðar, leggja vinstri-grænir upp í fordæmalausan uppgang. Í atvinnustefnu þeirra kemur fram að þetta sé ekkert mál. Þrátt fyrir stórfelldan niðurskurð ætla þeir að varðveita störf í menntamálum og velferðarmálum, því það er jú eitt stærsta atvinnumálið, að þeirra mati. Að auki munu störf spretta upp eins og fíflar í túni, tvist og bast, um hvippinn og hvappinn. Það verða störf á hverju strái.
Dæmalaus upprisa efnahagslífsins hefst með því að 2.500 til 3.000 störf í ferðamennsku skjóta upp kollinum vegna aukinnar markaðssetningar erlendis, með áherslu á vor-, haust- og vetrarferðir til Íslands. Mannkynið verður táldregið til að koma til Íslands í slabbi, myrkri og roki. Hvernig? Jú, það verður boðið upp á beint flug frá hinum stóra heimi og út á íslensku landsbyggðina. Þekkist eitthvað betra en landsbyggðin um vetur? Aðrir áfangastaðir munu blikna í samanburðinum. London, París og Róm verða orðin tóm. Hver vill vera í sandölum og ermalausum bol þegar hægt er að mæta í kraftgallanum til Egilsstaða, eða fara á sjóinn í myrkri, frosti og roki til að kíkja á hvali við Húsavík?
Innan skamms mun hagkerfið taka á stökk líkt og fældur graðhestur. Ástæðan er yfirvofandi stórvöxtur í landbúnaðarframleiðslu Íslendinga, sem VG áætlar að skili 1.500 til 2.000 störfum til viðbótar við það sem nú er. Og hvernig? Enn verður sannfæringarmætti Íslendinga beitt á útlendinga til að ginna þá. Fólk í útlöndum er eins og leir. Það þarf bara að móta það í þeirri mynd sem okkur þykir fýsilegust og sveigja það undir vilja okkar. Vinstri-grænir munu hanna ómótstæðilegt markaðsátak fyrir íslenskar landbúnaðarvörur og auka grænmetisframleiðslu íslenskra bænda. Hollensku tómatarnir breytast í tómatsósu við tilhugsunina. Engu skiptir þótt skilyrði til landbúnaðarframleiðslu séu miklu betri alls staðar í heiminum, ef frá eru taldar eyðimerkur án aðgangs að vatni. „Innlend kornrækt verður stóraukin“ með hjálp vinstri-grænna. Þótt forsenda þess sé að kornræktin verði að vera samkeppnishæf við kornakra Ameríku, Rússlands og Evrópu skiptir það engu. Því vinstri-grænir eru ekki bundnir af hagfræðilögmálum eins og framboði, eftirspurn og hagkvæmni. Þegar maður hefur heilt ríki til að spila úr, og ónýtta skattstofna í mannauði, eru möguleikarnir endalausir.
Rosalegum árangri vinstri-grænna hafa síður en svo verið gerð tæmandi skil. Þeir ætla að auka fiskeldi og byrja að nýta fleiri tegundir, eins og kræklinga. Af einhverri ástæðu hefur þetta ekki gengið upp áður, en vinstri-grænir hafa forskot á aðra, því þeir hafa ótæmandi ríkiskassann til að seilast í. Þúsund störf verða til í skipaiðnaði, úrvinnsluiðnaði, umhverfistækni, ullar- og skinnaiðnaði, húsgagnaframleiðslu, vatnsútflutningi og minjagripagerð. 500 störf myndast vegna ófyrirséðrar uppbyggingar á landsbyggðinni sem fer af stað vegna þess að störf flytjast út á land þegar efnahagsundrið verður til. 500 störf koma upp á yfirborðið þegar nauðsynlegt verður að fara í uppbyggingu vegna stórfellds uppgangs í ferðamannaiðnaðinum. Efnahagsundur VG slær út fyrra undrahagkerfi Íslands og það verður miklu traustara, því vinstri-grænir kunna að beygja markaðslögmálin með sannfæringarmætti sínum og einbeittum sprotavilja.
Blogg
Kraftaverk VG
08:17 › 29. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
