ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Húsbændur og hjú

07:56 › 24. apríl 2009

Úlfaþytur er nú vegna þess að stjórnmálamenn hafa þegið styrki af stórfyrirtækjum. Fullkomið skilningsleysi ríkir á því að leyndin er heppilegri en að hafa upplýsingarnar uppi á borðum. Flestir stjórnmálamenn hafa upplýst það af einlægni að þeir hafi ekki hugmynd um það hverjir hafi styrkt þá til stjórnmálaþáttöku. Þeir séu með fólk í vinnu við að afla styrkja og eldveggur milli þeirra. Þannig hafi þeir ekki hugmynd um það hvort það sé jólasveinninn eða Björgólfur Guðmundsson sem lagt hafi inn á reikning þeirra nokkrar milljónir króna. Og auðvitað hvarflar ekki að kosningasmölunum að upplýsa frambjóðanda sinn um það hver var svo rausnarlegur eða nískur í hvert skipti.

Svarthöfði er einfaldrar manngerðar og trúir á allt það góða í manninum. Hann kaupir það hiklaust að frambjóðendur séu í kolniðamyrkri með leynistyrki sína. Trúnaðurinn milli húsbænda og hjúa er algjör og engin hætta á því að upplýsingaleki sé á milli herbergja á óðali hinna kjörnu. Eftir að DV birti í fyrradag upplýsingar um styrki Baugs kom Svarthöfða það þokkalega á óvart að tveir frambjóðendur staðfestu að þeir hefðu fengið fjórar milljónir króna hvor frá Baugi og FL-Group. Allt í einu vissu þeir af styrkjunum. Svarthöfði saup hveljur. Hvernig mátti það vera að trúnaðurinn milli þeirra og kosningasmalanna brast með þessum hætti? Fleiri frambjóðendur hafa stigið fram og staðfest umrædda styrki. Það getur ekki þýtt annað en trúnaðarbrest milli þeirra og kosningasmalanna. Húsbændurnir verða nú að hreinsa til í starfsliði sínu og reka þá sem uppvísir eru að lausmælgi. Allt fyrirkomulagið um leynistyrkina sem þingmenn höfðu ekki hugmynd um er hrunið vegna lausmælgi starfsmanna þeirra.

Þingmenn og aðrir kjörnir fulltrúar eru ekki hátt launaðir af ríki og sveitarfélögum. Því var þessi styrkjavæðing þeirra nauðsynleg. Ef Landsbankinn, Glitnir, Baugur eða Eimskip greiðir að hluta kostnað þingmanna léttir það á ríkinu við að standa undir rekstri þjóna almennings. Nú er búið að stórskemma þetta fyrirkomulag. Yfirgengileg er sú kröfuharka almennings að vilja fá upplýsingar um leynistyrki til þingmanna í gegnum tíðina. Skilur fólk ekki að vesalings frambjóðendurnir hafa ekki hugmynd um það hver styrkti þá. Ef þeir vissu af framlögum væru þetta ekki leynistyrkir og trúnaður hefði einhvers staðar rofnað. Eina sem hefst upp úr krafsinu með styrkina er að nú verður ríkið að leggja út enn meiri kostnað til að standa undir Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Guðlaugi Þór. Svarthöfði leggur til að styrkirnir fái að vera neðanjarðar áfram svo kjörnir fulltrúar þurfi ekki að þakka fyrir góðvildina.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?