Ekki er ýkja langt síðan íslenskir skrilljónamæringar voru einhver mestu fjármálasjéní og fjárfestingagoð í gervallri mannkynssögunni. Einhvern veginn þótti ekkert sjálfsagðara en að Íslendingar gætu þverbrotið öll lögmál eðlisfræðinnar og búið til eitthvað úr engu. Það voru helst einhverjir leiðinda Danir og stöku nöldrari á Íslandi sem virtust muna eftir þeim gömlu grunnskólasannindum að orka sprettur ekki upp úr engu. Peningar eru auðvitað ekkert nema orka eins og hver einasti kapítalisti veit upp á sína fingur þannig að hvert einasta mannsbarn sem hefur staðist samræmd grunnskólapróg hefði getað sagt sér að íslenska útrásin væri bara plat.
Íslensku víkingarnir virtust hins vegar hafa fengið Mídasar-töttsið í vöggugjöf og allt sem þeir snertu varð að gulli. Ja, það er að segja þangað til draumur sjálfsblekkingarinnar hrundi í október og á daginn kom að þeir voru ígildi Mídasar með öfugum formerkjum og allt sem þeir snertu breyttist í skít sem íslenska þjóðin situr nú uppi með í ókljúfanlegum haugum. Stórkostlegar fjárfestingarnar urðu allt í einu ekki skuldavafninganna og krosstengslanna virði þannig að glæsileg eignasöfnin enduðu sem óseljanlegt skran.
Hrunið mikla hefur leitt okkur þetta allt fyrir sjónir en síðan allt fór til fjandans hafa sprungur komið í þagnarmúra spillingarinnar þannig að seigfljótandi og viðbjóðslegt gumsið er farið að leka fram. Óþefurinn og ógeðið sem þessu fylgir er slíkt að heiðarlegu fólki sundlar og það svíður í augun.
Svarthöfði hefur með hjálp góðra lækna og enn betri lyfja náð að halda sönsum í foraðinu en í gær féllust honum endanlega hendur. Hann var nýbúinn að hengja innrammað bréf um að eign hans í Exista væri nú laus til útborgunnar, alls 23 krónur þegar hann heyrði í fréttum Stöðvar 2 að útrásarfyrirtæki hefðu borið vænar penigaslummur í útvalda stjórnmálamenn. Já, sæll. Hafi einhver hingað til efast um að þessir gaurar kynnu ekki að fjárfesta þá þarf sá hinn sami ekki að efast lengur. Hvaða heilvita manni með lágmarksgreind dettur í hug að kaupa sér Guðlaug Þór Þórðarson, Illuga Gunnarsson, Helga Hjörvar, Björn Inga Hrafnsson og Steinunni Valdísi? Ekki gæti Svarthöfði hugsað sér að eiga þetta fólk og af öllum þeim eignasöfnum sem Svarthöfði hefur heyrt að útrásarvíkingarnir hafi burðast með þá er þetta nú það fáfengilegasta.
Svarthöfði hefur hvorki mikið vit á viðskiptum né heldur djúpan skilning á þeirri lógík sem liggur að baki fjárfestingum hinnum heillum horfnu auðmanna en telur sig þó vita fyrir nokkuð víst að þeir keyptu helst ekki neitt án þess að græða á því. Það er að segja að fá eitthvað í staðinn. Og ekki er nú mikið notagildi í þessu fólki. Varla kemur það til þess að skemmta í barnaafmælum, bóna lúxusbílana eða sinna matarkaupum? Kannski vildu útrásarfyrirtækin bara renna stoðum undir lýðræðið með því að styrkja Reykjavíkurúrval íslenskra stjórnmálamanna til metorða án þess að fá neitt annað á móti en ánægjuna af því að sjá heiðarlegt fólk berjast fyrir þjóðþrifamálum á Alþingi og í borgarstjórn.
Sé svo er ekkert að fela og þess vegna skilur Svarthöfði ekki af hverju þetta ágæta fólk stígur ekki fram og gerir grein fyrir því í hvernig málinu liggur. Fékk það mikla peninga frá auðmönnum og þá hvers vegna. Svarthöfði og aðrir Íslendingar ganga til kosninga eftir nokkra daga og við þurfum að vita hverja við erum að kjósa og á hvaða forsendum. Í aðdraganda kosninga hefur innihaldslaus orðaflaumurinn staðið út úr þessu fólki en þegar fjölmiðlar leita svörum við spurningum sem fólk vill virkilega heyra þá er pólitíkusarnir utan þjónustusvæðis. Í það minnsta þjónsutusvæði almennings. Hið meinta styrkjafólk hefur nú þrjá virka daga til þess að svara því hvort það sé í vinnu hjá almenningi eða einhverjum öðrum.
Svarthöfði bíður og honum er ekki skemmt.
Blogg
Fjárfestingarklúður
08:03 › 22. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
