ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Skjaldborg Jóhönnu gegn heimilunum

08:06 › 20. apríl 2009

Svarthöfði hefur beðið ógnarspenntur eftir hinni vígalegu skjaldborg sem átti að verja heimili hans fyrir efnahagshruninu, sem hann sjálfur er saklaus af eins og flestir samlandar hans. Fyrst heyrðist af skjaldborginni þegar Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn höfðu rústað efnahagslífinu, eins og leigubílstjóri sem keyrir um á cruise control með lokuð augun. Það gleymdist að kaskótryggja bílinn, hann var ástandsskoðaður af fúskara og bílstjórinn var ölvaður. Svarthöfði var farþegi í slysinu, en borgar bæði farið og viðgerðina.

Þegar Jóhanna Sigurðardóttir var gerð „verkstjóri“ ríkisstjórnarinnar 1. febrúar síðastliðinn nefndi hún tvennt í upphafi. Að koma atvinnulífinu í gang aftur og „að slá skjaldborg um heimilin og tryggja betur öryggisnetið í kringum heimilin í landinu“.

Hvar er þessi skjaldborg og hverjir eru í henni? Svarthöfði hefur ekki séð hana. Hins vegar varð Svarthöfði þess áskynja að örugga, verðtryggða húsnæðislánið hans hjá ríkisbankanum hækkaði um 20 prósent síðasta árið. Svo rak hann augun í það að verðið á fasteigninni hans er í frjálsu falli. Það fór niður um 4 prósent á einum mánuði. Þar fór meira en milljón á einum mánuði úr ævisparnaði Svarthöfða, minnst 33 þúsund krónur á dag. Fyrir þá upphæð hefði Svarthöfði geta búið eins og greifi á Hilton-hótelinu í Reykjavík í svokölluðu „Queen Executive Room Plus“.

Og hvar var þessi skjaldborg þegar bankinn tók fimm milljónir af ævisparnaði Svarthöfða í fyrra? Það verður ekki betur séð en að skjaldborgin sé á vegum þeirra hina sömu og skjaldborgin á að verja okkur gegn. Það voru bankar í eigu skjaldborgarinnar sem tóku peninginn af Svarthöfða og samlöndum.
Talsmenn skjaldborgarinnar segja að hún ætli ekki að láta Svarthöfða deyja fjárhagslegum drottni sínum (sem er reyndar skjaldborgin sjálf). Enda kæmi það illa út fyrir blessaða skjaldborgina ef Svarthöfði öðlaðist þá frelsun að verða gjaldþrota og losna við heimilið, sem hann getur ekki selt og sem hann skuldar meira í en hann á. Það eina sem skjaldborgin gerir er að tryggja hagsmuni óvina heimilanna. Svarthöfði er farinn að halda að skjaldborgin sé ekki þarna til að verja hann, heldur til að halda honum föngnum í skuldafangelsi.

Nú þegar skjaldborgin heldur Svarthöfða og samlöndum hans kyrfilega föstum í fjárhagslegum hlekkjum segist hún ætla að lækka laun sem eru yfir 300 þúsund krónum. Og hækka skattana í desert. Hvers vegna snýr skjaldborgin skjöldunum að Svarthöfða og stingur í hann spjótum sínum? Skjaldborgin er óvinurinn sjálfur!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?