ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Ég á mér draum

08:05 › 15. apríl 2009

Svarthöfði hefur verið logandi hræddur alveg frá því búsáhaldabyltingin náði hámarki og „vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn!!!“ hrökklaðist frá völdum. Svarthöfði sá svo sem ekkert sérstaklega eftir stjórn Geirs H. Haarde en spurði sig samt hvort nokkuð betra tæki við. Enn smeykari varð Svarthöfði svo þegar boðað var til kosninga enda er Svarthöfði orðinn það gamall og lífsreyndur að hann veit að þegar kerfið höktir, stoðir bresta og los kemst á samfélagsgerðina fara vitleysingarnir á kreik og seilast til áhrifa.

Svarthöfði er svo sem alveg á því að sú hersing sem nú situr á þingi sé meira og minna öll vita gagnslaus og megi þess vegna alveg hverfa af hinum pólitíska vettvangi. Óttinn um að annað og verra taki við hefur samt nagað Svarthöfða allt frá því boðað var til kosninga í apríl.

Ný skoðanakönnun sem birt var í gær náði aðeins að róa taugar Svarthöfða en samkvæmt henni kemst formaður Framsóknarflokksins ekki á þing og vissulega verður ekki kosið alveg til einskis ef framsóknarmönnum á þingi fækkar þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Þá þótti Svarthöfða ágætt að heyra að Sigurður Kári Kristjánsson myndi að öllum líkindum sleppa inn sem jöfnunarmaður. Það er nefnilega alveg nauðsynlegt að í það minnsta einn firrtur frjálshyggjudindill fái að ganga laus um ganga þingsins til þess að minna fólk stöðugt á að erindi Sjálfstæðisflokksins í íslenskri pólitík er lokið. Svo finnst Svarthöfða það ósköp notaleg tilhugsun að geta rölt út í Melabúð og keypt sér þar rauðvín og bjór með landbúnaðarhaftaslátruðu fjallalambinu á grillinu. Þegar kemur að greiðum aðgangi að búsi ber Svarthöfði fullt traust til Sigurðar Kára og efast ekki um að drengurinn muni ekki linna látum fyrr en draumurinn um léttvín í matvöruverslunum verður að veruleika.

Þessi nýja skoðanakönnun varð því til þess að Svarthöfði gat sofnað án lyfja í nótt en því miður voru draumfarirnar ekki góðar. Svarthöfða dreymdi að hann stæði á Austurvelli við þingsetningu og horfði þar á nýja þingmenn elta dómkirkjuprest inn á nýja vinnustaðinn sinn. Þarna sá hann glitta í Geira á Goldfinger, Róbert Marshall, Þráin Bertelsson, Ástþór Magnússon, Ólínu Þorvarðardóttur, Sigmund Erni, Guðlaug Þór Þórðarson, Hannes Smárason, Sigurjón Árnason, Sævar Ciesielski, Davíð Oddsson, Lalla Johns og Jón Baldvin Hannibalsson og óþolandi náungann sem talar svo hátt um stjórnlagaþing í heita pottinum að Svarthöfði hrekst jafnan undan gjamminu í honum yfir í sjóðheita pottinn.

Vondar martraðir eru oft þannig að þær verða bara verri og verri eftir því sem á líður og allt í einu var Svarthöfði kominn inn í stofu þar sem hann horfði á fréttir af stjórnarmyndun í sjónvarpinu. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn höfðu lokið við að mynda litla minnihlutastjórn sem Lýðræðishreyfingin og Borgarahreyfingin ætluðu að verja falli. Hannes Smárason yrði heilbrigðisráðherra í nýju stjórninni, Þráinn Bertelsson ætlaði að taka fjármálaráðuneytið föstum tökum en fjandvinur hans Ásgeir Þór Davíðsson fékk dómsmálaráðuneytið í sinn hlut. Siv Friðleifsdóttir var ætlað að vera forsætisráðherra fyrri hluta kjörtímabilsins og skipta svo á utanríkisráðuneytinu við Ástþór Magnússon.

Fréttaskýrandinn sagði þó að samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu (Sigmundur Ernir og Róbert Marshall höfðu verið að taka í nefið með  Össuri á karlaklósettinu þegar þeir heyrðu Birki Jón tala í símann á einum básnum og láku því beint í gamla kollega á Stöð 2) reiknuðu framsóknarmenn fastlega með því að Ástþór myndi hrökklast úr embætti fyrir þann tíma eftir að hafa lýst yfir stríði við Holland, Bretland, Evrópusambandið, Ísrael, Kanada, Rússland, Eistland, Litháen, NATO, Varsjárbandalagið, FBI, Bessastaði og Grænland.

Þá vaknaði Svarthöði í svitakófi við skelfingarópin í sjálfum sér.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?