Svarthöfði hefur aldrei skilið hvurslags annarlegur metnaður rekur fólk út í pólitík. Það sést úr mílufjarlægð að þetta stapp er hundleiðinlegt enda virðist það einhvern veginn loða við þá sem feta þessa braut að þeir þykja bæði leiðinlegri og heimskari en við hin. Og vilji svo ólíklega til að skemmtileg og óvitlaus manneskja láti hafa sig út í þá vitleysu að koma nálægt pólitík slettist drullan frá hinum yfir hana þannig að hún er sjálfkrafa stimpluð heimsk og leiðinleg.
Sjálfsagt er eftir einhverju að slægjast þarna þar sem fólk virðist almennt ófáanlegt til að hætta í stjórnmálum þegar það er komið í atvinnumannahópinn. Líkamleg veikindi og ærumissir fyrir dómstólum slá ekki einu sinni á löngunina til þess að fá að teljast til hinna heimsku og leiðinlegu. Svarthöfða er samt fyrirmunað að skilja áhuga fólks á djobbum á Alþingi og í pólitík í hallærisástandinu núna.
Það getur varla nokkur haft gagn, gaman eða gróða af því að komast til valda hjá gjaldþrota og forsmáðri smáþjóð á hjara veraldar. Kjötkatlarnir sem voru funheitir fyrir nokkrum mánuðum eru rétt ylvolgir núna og alls konar lið, rannsóknardómarar og sérkennilegir saksóknarar, mun vaka yfir hverri embættisfærslu. Fólk sem er í pólitík núna getur varla ýtt við kantsteini eða hugsað um vaxdúk án þess að fjölmiðlar og eftirlitsaðilar spretti upp með samsæriskenningar, stríðsfyrirsagnir og handjárn á lofti.
Svarthöfði getur samt ekki vorkennt þessu liði sem álpast út í þennan furðubransa. Samúðin liggur öll hjá ólánsömum mökum þessa fólks. Mikið lifandis skelfingar ósköp hlýtur að vera leiðinlegt að hafa bundið trúss sitt við manneskju sem gerir sér það að leik að láta velta sér upp úr tjöru og fiðri. Makar stjórnmálafólks eru hin raunverulegu fórnarlömb sem þurfa að gjalda fyrir skakkan metnað eða þorsta í valdasukk og kjötkatlaseyði lífsförunautarins.
Svarthöfði komst við þegar hann las fréttir um daginn af eiginmanni breska ráðherrans Jacqui Smith sem kom sér, konu sinni og stjórnvöldum í bobba fyrir ekki merkari sakir en að kaupa sér smá klám. Enginn amast við því að Svarthöfði kaupi aðgang að klámi á Digital Ísland rásum Stöðvar 2 enda er Svarthöfða ekki í opinberu emblætti og klámreikningurinn skuldfærist ekki beint á krítarkort fjármálaráðuneytisins. Hversdagslegir hlutir sem við meðaljónarnir getum leyft okkur eru bannaðir mökum pólitíkusa. Þessi maður í Bretlandi er beittur miklum rangindum þar sem svona stjórnmálalið er aldrei heima og því hlýtur klám að vera hluti af sjálfsögðum mannréttindum eiginmanns Jacqui Smith.
Makar íslensks stjórnmálafólks búa við álíka þröngan kost. Þannig má til dæmis ástsæl forsetafrú okkar helst ekki tjá sig eftirlitslaust við fjölmiðla vegna þess að hún er svo skemmtileg og fyndin. Hún er of lífleg fyrir hið steinrunna embætti og er því haldið eins og arabakonu bak við ósýnilega blæju á Bessastöðum.
Bryndís Schram komst sem betur fer alltaf upp með að vera hress og skemmtileg á meðan hún stóð við hlið Jóns Baldvins í alls kyns embætttum opinberum. Hún talaði samt hreint út um að það væri bæði leiðinlegt og full vinna að vera maki stjórnmálamanns og uppskar þá litlar þakkir. Sannleikurinn er stundum sár.
Kristján Arason, eiginmaður varaformanns Sjálfstæðisflokksins, hefur heldur betur þurft að gjalda fyrir störf maka síns undanfarið. Maðurinn starfaði á fjármálamarkaði en mátti varla hvorki fjárfesta né sinna starfi sínu án þess að það væri gert í meira lagi tortryggilegt. Ofan í kaupið var svo svæsnum kjaftasögum smurt í svo þykku lagi á hann að eiginkona hans sá sig knúna til þess að vinda ofan af einhverju af vitleysunni í landsfundarræðu sinni. Sem var alveg óvitlaust vegna þess að ljótustu sögurnar voru víst spunnar af samflokksfólki hennar.
Svarthöfði á bara eitt gott ráð fyrir maka pólitíkusa. Látiði liðið velja milli ykkar og þessarar ósvinnu og velji þau rangt skuliði skilja við þau á staðnum og lifa lífinu frjáls.
Lykilorðið að kláminu á Digital Ísland er 1234.
Blogg
Makalaus vitleysa
08:06 › 1. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
