1262, 1662, 2009. Svarthöfði hefur loksins opnað augun fyrir samsærinu gegn Íslandi.
Þetta virtist allt vera eðlilegt. Geir Haarde varð forsætisráðherra. Allt leit vel út, þar til allt hrundi skyndilega öllum að óvörum. Samt ekki alveg öllum.
Geir Haarde náði að fela raunverulega stöðu efnahagslífsins fyrir þjóðinni þar til það var of seint. Hann hélt því statt og stöðugt fram að allt væri í lagi og allt yrði í lagi. Fyrst eftir hrunið virtist þetta hafa verið tær ragmennska, firring og lygaárátta hjá honum. En nú veit Svarthöfði svarið.
Byrjum á byrjuninni. Eftir uppgangstíma sjálfstæða þjóðveldisins náðu Norðmenn aftur yfirráðum yfir Íslendingum árið 1262. Þeir misstu okkur til Dana, sem komu á einveldi árið 1662. Við náðum ekki frelsinu nema með því versta af öllu illu: uppgangi Hitlers.
Fór engan að gruna neitt þegar eignir Glitnis í Noregi voru seldar á undirverði til Norðmanna, sem endurseldu þær svo á margföldu verði? Fór engan að gruna neitt þegar Geir "Haarde" gerði ekkert til að koma í veg fyrir hrunið? Þegar hann kappkostaði að hylma yfir vandann, þar til það var of seint? Það var eins og hann vildi passa að hrunið yrði örugglega nógu mikið. Jafnvel mesta mögulega óhæfni getur ekki útskýrt þetta. Svarthöfði kveikti ekki ljósið fyrr en á föstudaginn, þegar norska bergmálaði milli veggja í Seðlabankanum. Plottið var fullkomnað.
Geir Haarde er sonur norsk símafræðings. Hann er í reynd jafnmikill Norðmaður og Íslendingur. Engan skal undra að afleiðingar stórundarlegrar hagstjórnar hans séu yfirtaka Norðmanna á Seðlabankanum.
En Geir gat ekki klárað þetta einn. Stjórnarandstaðan myndi auðveldlega koma upp um jafnósvífið plott og að fela hrunið efnahagslíf. Hann þurfti að semja við stjórnarandstöðuna um að láta bara eins og venjulega, þannig að ekkert kæmist upp, ekki fyrr en það væri of seint. Þetta reyndust vera þeir sömu og mæltu fyrir því að íslensku krónunni yrði hent og norsk króna gerð að ríkisgjaldmiðli á Íslandi. En stjórnarandstaðan þurfti einhver laun fyrir viðvikið. Þess vegna samþykkti Geir að hegða sér eins og firrtur kjáni frammi fyrir þjóðinni, og koma þannig af stað handstýrðri öldu óánægju gegn sér, með þeim afleiðingum að vinstri grænir kæmust í stjórn með stuðningi Framsóknarflokksins.
Grunaði engan neitt þegar þingmenn fóru í gríðarlega langt jólafrí rétt eftir efnahagshrunið? Eins og þeim lægi ekkert á! Grunaði engan neitt þegar þingmenn stjórnarandstöðu vinstri grænna tuðuðu bara í stað þess að ljóstra upp um blekkinguna, þannig að fólk heyrði hreinlega ekki hvað þeir væru að segja? Setti enginn saman tvo og tvo, á eftir einum og með sex í miðjunni, þegar Steingrímur Joð Sigfússon ákallaði norsku krónuna, af öllum gjaldmiðlum?
Á föstudaginn var það sem sagt fullkomnað. Þá stóð norski forsætisráðherrann, með norskan útsendara sér við hlið, og mælti til íslensku þjóðarinnar á norskri tungu. Og nú er það of seint. If you can't fight them, join them, sagði maðurinn. Ja, vi elskar detta landet!
Blogg
Norska plottið!
08:16 › 3. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
