Svarthöfði var einn þeirra sem trúðu því að Íslendingar væru bestir í heimi þegar kæmi að viðskiptum. En við vorum það ekki á sama hátt og við héldum. Við vorum bara best í píramídaviðskiptum.
Athafnamenn frá Íslandi náðu að margfalda úrvalsvísitöluna og sölsuðu undir sig hvert erlenda vígið á fætur öðru. Um allan heim spurði fólk sig af hverju þessi snilld Íslendinga stafaði. Nú er niðurstaðan komin. Starfsmenn bankanna tóku lán hjá bönkunum til að kaupa hlutabréf í sömu bönkum. Þannig tókst þeim að hífa upp hlutabréfaverðið. Útlán breyttust í eigin fé í píramídasvindlinu mikla.
Innan Glitnis fengu fjölmargir lán fyrir hlutabréfum í Glitni. Framkvæmdastjóri áhættustýringar, lánaeftirlits og lögfræðisviðs var einn þeirra sem nýttu hæfileika sína til að fjárfesta í Glitni út á 800 milljóna króna kúlulán sem verður aldrei borgað. Það gerðu líka framkvæmdastjórar eignastýringar, fyrirtækjasviðs og fjárstýringar. Meira að segja Birna Einarsdóttir, núverandi bankastjóri, fékk 184 milljóna króna lán. Sem betur fer gleymdist lánið og hún þarf ekki að borga það. Og Finnur Sveinbjörnsson, núverandi bankastjóri Kaupþings, fékk 850 milljóna króna kúlulán til að kaupa í bankanum sem hann stýrði, Icebank. Íslensku bankarnir voru eins konar gleðibankar eigenda sinna.
Nú vilja sumir sérfræðingar íslenska efnahagsviðundursins leyfa þjóðinni að njóta krafta sinna. Tryggvi Þór Herbertsson er einn þeirra. Hann hefur þann einstaka hæfileika að taka hundraða milljóna króna lán og sleppa við að borga það. Fari svo að hann komist til valda mun hann nýta þennan hæfileika þjóðinni til bjargar, með því að láta húsnæðislánin gufa upp eins og Dögg Pálsdóttur í prófkjöri.
Dæmalaus snilld Íslendinga í viðskiptum felst í hæfileikanum til að svindla. Sumar þjóðir eru góðar í skíðaíþróttum, súkkulaðigerð, bílasmíði eða hugbúnaðarþróun. Við kunnum píramídaviðskipti. Eða öllu heldur okkar kúlukóngar kunna þetta. Þeir létu veðsetja allt mögulegt til að geta fengið fleiri og meiri lán frá útlöndum. Þeir veðsettu meira að segja hæfileika sinn til að taka lán og svindla og kölluðu það viðskiptavild. En það getur talist arðvænlegt að ginna fólk til að kaupa í banka, sem kaupir síðan í sjálfum sér til að hækka hlutabréfaverðið, þar til bólan springur.
Loksins er sannleikurinn kominn í ljós. Svarthöfði þarf ekki lengur að berjast við öfundina, sem hvíslaði alltaf í eyra hans þegar Range Roverar skvettu á hann polli og þegar einkaþoturnar röskuðu ró hans. „Þau eiga þetta ekki skilið,“ vældi hún andstyggilegum tóni. Þegar allt kom til alls var það enginn nema öfundin sem hafði rétt fyrir sér. En skaðinn er skeður og við sitjum eftir með ómanneskjulegar skuldir. Svo vill til að þjóðin hefur aðgang að fjölda einstaklinga sem eru snillingar í að losna undan hundraða milljóna króna skuldum. Það er lán í óláni.
Blogg
Íslands-píramídinn
08:11 › 26. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
