Vernd karlmanna er veigamikil rök fyrir því að banna nektardans. Nektardansarar eru háþróuð kynferðisleg rándýr sem nýta sér veikgeðja karlmenn á sérstaklega viðkvæmum stundum. Þær eru eins og ljónin sem ráðast á höltu antílópurnar.
Þónokkrir karlmenn hafa stigið fram og sagt reynslu sína af því hvernig borið var í þá áfengi á nektardansstöðum og hvernig dönsurunum tókst að féfletta þá. Flestir þessara manna þora ekki að koma fram undir nafni, vegna skammarinnar sem fylgir því að vera misnotaður með þessum hætti.
Þegar karlmenn verða fórnarlömb nektardans eru þeir yfirleitt í ástandi örvinglunar og skertrar dómgreindar. Oft eru þeir hraktir og smáðir af kvenþjóðinni, sem vill ekki undirgangast blíðu þeirra gjaldfrjálst. Nektardansarar sitja um þessa hálfmenn þegar þeir ráfa ölvaðir inn á dansstaðina. Það segir sig sjálft að enginn heilsteyptur maður borgar sex þúsund krónur á mínútuna fyrir að leyfa léttlyndri konu að hossast á sér. Þarna koma brotnir menn.
Yfirlýsta vændiskonan Catalina Ncogo hefur greint frá því í einlægu viðtali við tímaritið Vikuna að íslenskar konur séu „ofdekraðar og koma fram við eiginmenn sína eins og hunda“. Þessir sömu menn fara með skottið á milli lappanna í faðm stúlkna, eins og hennar sjálfrar, og verða í sinni verstu neyð blíðusölum að bráð. Karlmenn, eins og hundar, hafa þörf fyrir blíðuhót, sem þeir þurfa að uppfylla með einhverjum hætti. Slíkt er ljótt að misnota í fjárhagslegum tilgangi.
Það ber að fagna átaki stjórnvalda gegn kynferðislegri fjárplógsstarfsemi í garð karlmanna. Nektardansstaðir eru engum í hag nema fjárhagslegum rándýrum sem herja á karlmenn í krafti þess að afvegaleiða þá kynferðislega og þeim mönnum sem svíkja kynbræður sína með því að skipuleggja slíka fjárplógsstarfsemi.
Blogg
Örvænting húsbændanna
08:15 › 20. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
