ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Fyrirmyndarríkið

08:08 › 19. mars 2009

Réttarkerfið á Íslandi er líklega óþarft. Einungis þarf að fylgjast með nokkrum ofurbloggurum og mál einstaklinga og félaga upplýsast með það sama. Engin ástæða er til þess að setja her manna í rannsóknir og dómsmál þegar réttsýnir bloggararar eru tilbúnir með kærur, ákærur og dómsúrskurði. Frekari vitnanna þarf ekki við og aðeins þarf að læsa menn inni.

Augljóst er til dæmis að allir sem flokkast sem auðmenn eru meira og minna sekir. Þar nægir að þeir séu útrásarvíkingar og þá örugglega með heimahöfn á aflandseyju. Svarthöfði er handviss um að glæpirnir eru til staðar. Aðeins þarf að hnykkja betur á þeim og uppfæra ásakanir á vefsíður og þaðan í vinsælan sjónvarpsþátt. Íslenskir útrásarvíkingar eru auðvitað Gyðingar norðursins og þá ber að afgreiða sem slíka. Enginn tími er til þess að eyða tímanum í rannsóknir eða óþarfa gauf. Við dæmum, sakfellum og fangelsum á mettíma.

Sjálfsagt að stórefla löggæslu í landinu og handtaka sem allra flesta þegar grunur eða kvittur er uppi er um lögbrot. Og það á ekki að fyrirgefa minnstu yfirsjónir. Löggæslumyndavélum þarf að koma upp sem víðast og velta við öllum steinum. Ekki á að líða neitt röfl um að menn séu saklausir uns sekt sannast. Ef fólk hefur tengst útrásarvíkingum eða unnið í bönkum er sjálfsagt að það afsanni sekt sína. Þannig munum við ná árangri. Ákveðnir þjóðfélagshópar eiga að ganga með ökklabönd með GPS-sendi þannig að hægt sé að fylgjast með hverju skrefi þeirra.

Innantóm orð um að rannsaka beri fólk duga ekki. Við verðum að fylgjast grannt með öllum einstaklingum. Hægt er að skapa þúsundir atvinnutækifæra með því að efla lögreglu og allt eftirlit í landinu. Nú eru 17 þúsund manns atvinnulausir en sú tala gæti snarlækkað með eflingu eftirlitsgeirans. Fæst fólk hefur neitt að fela þannig að gjörðir þess þola að vera öllum opinberar. Mönnum líður betur ef þeir fá sakleysisvottorð. Og þeir sem uppvísir verða af misferli einhverskonar verða sérstaklega merktir í öllum eftirlitskerfum. Hugsanlega mætti gera þeim skilt að ganga með gula stjörnu á flíkum sínum þannig að allir geti varað sig og vaktað þá.

Sögur um misferli einstaklinga sem þykja sennilegar geta verið grundvöllur frelsissviptingar. Við eigum að afnema trúnað á milli fólks og hefja þá til skýjanna sem dreifa upplýsingum. Allir verða að leggja sitt á vogarskálarnar til að uppræta afbrot og siðblindu í samfélaginu. Það gerist ekki öðruvísi en að allt verði opinbert og heildarsýn náist. Hin nýja íslenska lögregla verður að fá til þess allar mögulegar heimildir.

Tafarlaust þarf að setja neyðarlög svo ráðast megi fyrirvaralaust inn á heimili grunaðra án þess að dómarar komi þar að málum. Handtökur verða leyfilegar og beita má þrýstingi við yfirheyrslur. Einnig á lögreglan að fá fulla heimild til að koma fyrir myndavélum og GPS-sendum sem víðast. Enginn má sleppa undan armi laganna.

Innan skamms tíma geta Íslendingar komið upp svo öflugu kerfi að enginn geti ástundað siðleysi eða glæpi. Þjóðin á þess  kost að verða fullkomin. Auðvitað þarf að svipta marga frelsinu en nóg er af húsnæði í landinu. Aðalatriðið er að koma böndum á sem flesta og stöðva allt siðleysið. Engum verður hlíft. Tími er kominn til þess að viðurkennt verði að einstaklingar eru breyskir og ríkið á að vera alsjáandi



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?