Svarthöfði er einn fyrsti nafnleysinginn á Íslandi og hefur um áratugaskeið notið þess að vera í skjóli. Nafnleysið vekur honum djörfung og dug til að taka á viðkvæmum málum og varpa ljósi á gleðina eða grimmdina án þess að verða persónugerður í því sambandi. Á síðari árum hefur hinsvegar nafnleysingjum fjölgað á ógnarhraða og netið er bókstaflega löðrandi í systrum og bræðrum Svarthöfða. Sumir vefir eru bókstaflega gerðir út fyrir hina nafnlausu. Þar má nefna Málefnin sem í nokkur ár hafa verið skjól fyrir þá sem þurfa að koma fram upplýsingum án þess þó að þora því undir nafni og númeri.
Málsvarar nafnlausra í raunheimi eru fáir. Flestir þykjast hafa á þeim hina mestu skömm og þá ekki síst þegar óhróðurinn vellur fram sem elfur. Sumir hinna nafnlausu veitast að nafngreindum með fúkyrðum af ýmsu tagi. Aðrir eru kurteisir og prúðir og setja mál sitt fram með rökum. Þeir eru venjulega lítið lesnir. En þótt nafnlausir eigi sér ekki málsvara þá eiga þeir sína foringja. Stærsti hópur hinna andlitslausu er á vefsíðunni Eyjan þar sem þeir lúta forystu sjónvarpsmannsins Egils Helgasonar. Hann er einn helsti dáðadrengur íslensku þjóðarinnar og færði henni meðal annars saksóknarann Evu Joly. Nafnlausa hirðin hans laust upp samræmdu fagnaðarópi við það afrek.
Á Íslandi hefur smám saman orðið til neðanjarðarmenning þeirra sem kjósa nafnleynd, breiða yfir nafn og númer og hylja andlit sín. Þeir eru hinn ósýnilegi dómstóll götunnar og dæma jafnt lifendur sem dauða. Sumir hinna nafnlausu velja sér nafn utan kjötheima. Hugmyndaauðgin er endalaus. Þarna má nefna Dr. Cronex, Rimtryts og Rebel. Og þeir sem hafa sérstaklega mikla tjáningarþörf eiga fleira en eitt nikk. Þannig geta þeir komið með athugasemd inn á blogg meistara sinna í kjötheimum og svarað sér svo sjálfir. Þannig er óstaðfest að sömu aðilar eigi allt að 20 nikk og geti því haldið umræðunni lifandi langtímum saman. Ef enginn vill kallast á við þá koma þeir sjálfir aftur og hreyta út úr sér hrakyrðum eða hóli í eigin garð.
Nafnleysingjar eru ekki aðeins áhugamenn. Vitað er að stjórnmálamenn í prófkjörsbaráttu verða að gæta hagsmuna sinna og koma höggi á andstæðinga sína. Þeir raða því leyniskyttum sínum í hina ýmsu rangala netsins og stríðið um athygli almennings fer af yfirborðinu og niður í myrkrið. Öflugir frambjóðendur leggja ekki minnsta kraftinn í andlausar leyniskyttur sem tugum saman læðast um myrkrið og skjóta eiturpílum, í formi rætinna setninga, að óvinum leiðtoga sinna. Svarthöfði reikar stundum um þessar lendur afkvæma sinna og nýtur þess að velta fyrir sér því grímulausa ofbeldi sem nafnleyndin elur af sér. Stundum þyrmir yfir Svarthöfða í þessum aðstæðum þegar hann finnur til þeirrar ábyrgðar sinnar að vera frumherji hinna grímubúnu.
Blogg
Vér nafnlausir
08:18 › 17. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
