ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Blysför án fyrirheits

08:00 › 13. mars 2009

Þórhallur Vilhjálmsson markaðsfræðingur hlýtur að íhuga alvarlega að skipta um titil í símaskránni eftir að hann varð að athlægi fyrir misheppnuðustu markaðsherferð sem sögur fara af eftir hrun. Þórhallur lagði upp í göfugan göngutúr með kyndil á lofti til þess að leysa hallærislega leiðtogakreppu Samfylkingarinnar. Hann hugðist bregða blysi skynseminnar á loft og leiða hóp villuráfandi samfylkingarsauða að heimili Jóhönnu Sigurðardóttur og grátbiðja hana um að svara kalli fjöldans og fylla skarð Ingibjargar Sólrúnar.

Mislestur Þórhalls á markaðsaðstæðum og vanmat á framboði og eftirspurn toppar næstum IceSave herferð Landsbankans í fíflagangi. Nokkur eftirsðurn er vissulega eftir kröftum Jóhönnu en framboðið á fólki sem nennir að sýna henni það í verki er engin. Eiginlega er framboðið á fótgönguliðum blysfarar Þórhalls jafn glæsilegt og framboðið á leiðtogaefnum Samfylkingarinnar.

Ástþór Magnússon á að baki farsælli leiðangra en þessa bálför aulahrollsins en aðeins einn villuráfandi vegfarandi og nokkrir fjölmiðlungar mættu í skrúðgönguna sem varð fyrir vikið besti brandari vikunnar þrátt fyrir einlægan og göfugan hug eldhugans sem vildi bera elda að húsi Jóhönnu og þvinga hana til þess að taka að sér það sem nú virðist vera óáhugaverðasta og lummulegasta embætti sem er á lausu á Íslandi um þessar mundir.

Hversu hallærislegur getur annars einn stjórnmálaflokkur verið? Einhver reytingur af fólki sem hefur tíma til að drepa langar að fá að leiða Frjálslynda flokkinn í sitt pólitíska grafhýsi. En enginn. Ekki ein einasta manneskja getur hugsað sér að leiða Samfylkignuna í fylgisuppsveiflu í gegnum kosningar. Varla hefði þurft að leggjast í djúpar markaðsrannsóknir til þess að komast að því að þessa blysför ætti aldrei að fara. En Þórhallur virðist vera jafn skynugur á markaðsaðstæður og snillingarnir hjá gamla Landsbankanum sem ætluðu að troðfylla galtómar fjárhirslur sínar með því að hafa sparifé af blásaklausu fólki í gervallri Evrópu.

Sem betur fer hafði peningaryksuga Landsbankamanna aðeins náð til vasa Breta og Hollendinga áður en bankinn hrundi. Annars stæðum við nú í fyrirfram töpuðu stríði við sameinaða Evrópu. Eyðimerkurganga Þórhalls með kyndilinn var byggð á álíka markvissum mislestri á markaðsaðstæðum og IceSave átak Landsbankans. Meginmunurinn á þessum tveimur markaðsherferðum er að brandari Þórhalls var ódýrari og fyndnari. En báðum fylgir sársaukafullur aulahrollur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?