Umliðin helgi einkenndist af heljarstökkum eða risafalli fólks í prófkjörum. Það gladdi hjarta Svarthöfða að sjá vestfirsku valkyrjuna Ólínu Þorvarðardóttur skjótast hátt á himin Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi og hreppa annað sætið á framboðslista flokksins. Það er til marks um jafnræði hjóna að hún ýtti Sigurði Péturssyni, eiginmanni sínum, til hliðar og tók sæti hans. Rétt er að halda því til haga að hann hvarf sjálfviljugur frá framboði í stað þess að verða lagður af eiginkonu sinni.
Þessi mikla kjarnakona á eftir að láta mikið að sér kveða á Alþingi og vonandi fær hún ráðherrastól. En það eru ekki allir sammála um ágæti þessa fyrrverandi skólameistara frá Íslafirði. Á sínum tíma reyndi Ólína eftir mætti að halda uppi aga meðal kennara ekki síður en nemenda. Það tókst ekki betur en svo að uppreisn brast á í skólanum og á endanum hrökklaðist skólameistarinn úr starfi. Þann dag bugaðist Svarthöfði af leiða yfir skammsýni þeirra sem ekki bera skynbragð á stóra einstaklinga. Fæstir skilja ástæður þess að hún yfirgaf Menntaskólann, en sjálf er Ólína með það á hreinu að hún sætti innri ofsóknum enskukennara og fleiri öfundarmanna. Hún var misskilin af vitsmunaverum sem þekkja ekki taðköggla frá eplum.
Um tíma var Ólína dómari í hinum alræmda sjónvarpsþætti Gettu betur. Þar fengu gáfur hennar og hárprýði svo sannarlega að njóta sín. Það hvessti að vísu á stundum í samskiptum dómara og keppenda sem skyldu ekki að orð dómarans eru eins konar lög. Og Ólína gaf sig hvergi í þeim slag og stóð á sínu eins og ævinlega.
Allt frá því að Ólína gekk hnarreist út úr Menntaskólanum á Ísafirði hefur hún verið áberandi í umræðunni. Geislandi gáfur og innsæi hefur einkennt ræðu hennar og rit. Hún hefur undirstrikað rækilega hversu mikið tjón Menntaskólans var við brotthvarfið.
Ólína stóð í vetur fyrir samtökum óháðra sem vildu beita sér fyrir endurskoðun stjórnarskrárinnar. Áréttað var þar að þau sem að þessu stóðu stefndu ekki á þing og væru ópólitísk með tilliti til hefðbundinna stjórnmálaflokka. Þetta var hópur sem af eindrægni barðist fyrir stjórnlagaþingi og hafði að markmiði að leiðrétta lýðræðishallann. Óljóst er hvað gerðist í framhaldinu en væntanlega hafa augu Ólínu opnast fyrir því að fjórflokkurinn er hjarta íslenska lýðveldisins. Í framhaldinu hefur hún ákveðið að fara í framboð. Samfylkingin var þá rökréttur farvegur fyrir hana.
Á þeim örlagatímum sem nú eru á Íslandi er nauðsynlegt að fá til verka kjarnafólk. Svarthöfði er sannfærður um að Ólína er af þeirri sort sem dugir til að draga þjóðina upp úr feninu. Þegar fyrir liggur að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er að hætta í stjórnmálum og Jóhanna Sigurðardóttir vill ekki taka við kaleik formanns Samfylkingar er lausn formannskreppunnar augljós. Ólína er auðvitað best til þess fallin að stýra flokknum milli skerja. Þá er víst að hún mun lúskra á þeim sem ekki fylgja stefnu hennar. Öllu skiptir að nú er Ísland að komast í réttar hendur. Þjóðin mun að sjálfsögðu fylkja sér að baki vestfirsku valkyrjunni sem mætt er til að bjarga þjóðinni.
Blogg
Vestfirska valkyrjan
08:16 › 10. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
