Íslenska útgáfan af Hringadróttinssögu er flóknari og hræðilegri en barnaævintýrið sem J.R.R. Tolkien skrifaði um tilraun vaskra hobbita og vina þeirra til að eyða Hringnum eina. Stórhættulegu djásni sem færði þeim sem hann bar takmarkalítil völd. Davíð Oddsson er hreyfiaflið í hinni íslensku Hringadróttinssögu en fyrir rúmum áratug fékk hann hinn illa Baug á heilann og hefur farið hamförum, eins og lítill hobbiti með trygga náhirð í eftirdragi, í tilraunum sínum til að eyða Hringnum eina. Skúrkurinn sem Hringinn ber hefur í krafti hans haft takmarkalítið vald yfir verslun og viðskiptum Íslendinga Davíð og náhirðinni til umtalsverðrar armæðu.
Nú hillir loks undir endalok þessa íslenska harmleiks um Davíð, Jón Ásgeir og Bauginn eina. Sagan er samt flóknari en svo að Svarthöfði fái hana til þess að ganga jafn vel upp og Tolkien tókst með sinni útgáfu. Davíð er nefnilega ekki með jafnheilbrigðan málstað og hobbitarnir og er alls ekki jafnhjartagóður og Fróði Baggason. Þegar Davíð horfir illu auga yfir landið úr bæli sínu í Svörtu loftum minnir hann eiginlega meira á hinn illa Sauron í sögu Tolkiens. Sá hafði glatað Hringnum eina og lagði allt í sölurnar til að endurheimta hann og ægivald sitt. Útsendarar Saurons voru svo alveg sérstaklega dökkar og banvænar skuggaverur. Sannkölluð náhirð.
En ef Davíð er staðgengill Saurons hvernig passar þá Jón Ásgeir inn í ævintýrið? Svo má ekki gleyma Gollum sem fékk Hringinn eina á heilann, umbreyttist í ógeðslegt vitfirrt skrímsli vegna álaga Hringsins og endaði með að steypa sjálfum sér í glötun þegar hann stökk á eftir Baugnum eina ofan í kraumandi eldfjall og þar með inn í eilífðina.
Er Davíð Gollum? Er Jón Ásgeir Gollum? Eða er kannski bara íslenska þjóðin Gollum? Er Hekla inngangurinn að víti og er Jóhanna Sigurðardóttir Gandalfur hinn grái? Er Össur skeggjaður bardagadvergur vopnaður öxi?
Svarthöfði hefur alveg tapað áttum í íslenska harmleiknum um Bauginn eina. Veit ekki hvernig hann byrjaði og með hvaða ósköpum hann mun enda.
Blogg
Hver er Gollum?
07:16 › 7. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
