Framsóknarflokkurinn er kominn áberandi lengst í þeirri pólitísku ormahreinsun sem allir flokkar munu þurfa að gangast undir til þess að eiga lífsvon í nýjum og breyttum heimi eftir efnahagslegt og pólitískt gjaldþrot þjóðarinnar. Framsóknarmenn þurftu ekki að gera annað en skrúfa nýjan haus á syndum spilltan flokksskrokkinn og pólitískt líkið spratt upp, hressara en aldrei fyrr, og leikur nú við hvurn sinn fingur.
Framsóknarflokkurinn var fyrir nokkrum vikum eitthvert alhallærislegasta fyrirbærið í íslenskri pólitík sem enginn vildi kenna sig við nema afdalalið og spillingargemsar í leit að skjótfengnum pólitískum gróða og hjáleið að opinberum kjötkötlum. Með glæsilegri innkomu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í flokkinn og íslenska pólitík hefur orðið alger viðsnúningur á þessu og nú vilja allir flottustu gæjarnir og heitustu gellurnar vera í flokkinum.
Jónína Ben. gekk til liðs við flokkinn og í kjölfarið fylgdu andans jöfurinn Þráin Bertelsson og stuðpinninn Guðmundur Steingrímsson. Og nú síðast í gær las Svarthöfði, sér til ómældrar ánægju á Vísi.is, að Sævar Ciesielski væri tilbúinn til þess að leiða lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Þetta gerir Sævar með velþóknun Guðna Ágústssonar sem þurfti ekki alls fyrir löngu að hrökklast úr stóli formanns flokksins þar sem hann var eini eftirlifandi skemmtilegi framsóknarmaðurinn. Vissulega er eitthvað harmrænt við það að svo skömmu eftir að Guðni gafst upp fyrir öllu leiðinda hyskinu í flokknum skuli margt af skemmtilegasta fólki landsins vilja ljá framsókn krafta sína.
Sigmundur Davíð er því að leggja upp í magnaða sigurför um landið og með annan eins mannskap er eiginlega ekki neitt vit í öðru en að fara hringinn í kringum landið á næstu vikum og koma við á hverju byggðu bóli með sannkallaða karnivalstemnignu sem mun laða enn fleiri að hinum nýja Framsóknarflokki. Flokki sem getur nú leyst Bylgjuhraðlestina af hólmi og lyft geði landans um leið og fólki er gefin ný von á lífið og tilveruna í krafti hins endurfundna ungmennafélagsanda framsóknarmanna.
Jónína Ben. hefur náð fullkomnum tökum á að blanda saman skemmtun og uppbyggilegri iðrahreinsun þannig að hún getur leikið á stólpípu undir pólitískum fagurgala Sigmundar Davíðs þangað til Guðmundur stelur senunni með því að þenja nikkuna í botn. Þá er vel við hæfi að Þráinn fari með gamanmál, enda manna skemmtilegastur, og lesi upp úr birtum og óbirtum verkum sínum. Lífreynslusaga Sævars ætti síðan að geta orðið þeim að kenningu sem nú harma hlutinn sinn og væla yfir lífskjaraskerðingu kreppunnar en slíkur barlómur verður hjóm eitt í samanburði við allar þær lífsins fjörur sem Sævar hefur sopið. Nú mun landinn læra að berjast.
Með allar þessar kempur, hvundagshetjur, heimspekinga og hugsuði mun fátt fá stöðvað Framsóknarflokkinn sem á einni nóttu breyttist úr lítilli, lokaðri hagsmunaklíku heimskra, ríkra, hvítra, stríðsglaðra karla í lífrænt afl sem spannar litróf lífsins alls og hefur nú á að skipa fólki sem býr yfir þekkingu bæði til þess að hreinsa sál og líkama þings og þjóðar. Loksins ber þessi fornfrægi flokkur aftur nafn með rentu, galopinn öllum í báða enda
Blogg
Sirkus Simma smart
08:39 › 5. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
