ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Safn græðginnar

08:15 › 27. febrúar 2009

Svarthöfði sér ekkert nema möguleika í nýfengnu málfrelsi Davíðs Oddssonar sem hann öðlaðist eftir að Alþingi setti lögbann á störf hans í Seðlabankanum. Þegar eini maðurinn sem enn er með fullu viti í þessum sturlaða heimi hrunsins hefur gert upp við þá óreiðumenn sem settu landið á hausinn með alls konar krassandi leyndarmálum úr svörtu bókinni sinni getur uppbyggingin hafist fyrir alvöru.

Davíð er eini maðurinn sem ber hag þjakaðs almennings fyrir brjósti og er eini maðurinn sem sá bankahrunið fyrir og því mun hann eðlilega leggja hönd á plóg þegar kemur að endurreisn lands og gjaldþrota þjóðar.

Það fyrsta sem alvöru leiðtogi með Churchill-komplexa gerir er auðvitað að koma í veg fyrir að þau ósköp sem hann varaði við fyrir daufum eyrum endurtaki sig. Hann tryggir að við munum læra af reynslunni til þess að sorgarsagan endurtaki sig ekki. Til þess að hrunið og afleiðingar þess gleymist aldrei þarf þjóðin að eignast safn. Safn græðginnar. Salurinn er svo gott sem tilbúinn. Það eina sem þarf að gera er að þjóðnýta hálfkarað og skothelt sveitasetur Sigurðar Einarssonar í Norðurárdal. Klára bygginguna fyrir almannafé, rétt eins og tónlistarhús Björgólfs Guðmundssonar, og fylla það svo af glingri og útrásardóti.

Hrun okkar hefur vakið heimsathygli og það mun Safn græðginnar líka gera. Safnið verður eftirsóttur ferðamannastaður eins og Gracelandið hans Elvisar í Memphis. Útlendingar, ekki síst Danir, Hollendingar og Bretar, munu koma í stríðum straumum í Norðurárdalinn til þess að hlæja að mikilmennskubrjálæði dvergþjóðar sem ætlaði að kaupa heiminn með Matadorpeningum. Veggir safnsins verða skreyttir leikmannatreyjum West Ham, hlutabréfum í FL Group og innrömmuðum myndum af einkaþotum, snekkjum, Bentleyum, Range Roverum og alls konar græjum sem nú fást keyptar á brunaútsölum. Gleraugu Eltons John verða þarna auðvitað líka og Candle in the Wind mun endalaust hljóma úr hátalarakerfinu.

Íburðarmikil vaxmynd af demantaskreyttum forsetahjónunum að stýra svallveislu afsteyptra útrásarvíkinga verður í öndvegi og rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað sjálfur safnvörðurinn. Geðstirður fyrrverandi seðlabankastjóri sem rukkar útlendingana um aðgangseyri með 18 prósent vöxtum og neitar að gefa til baka á meðan hann tautar: „I told you so. I told you so!“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?