ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Þrætubók náhirðar

08:05 › 26. febrúar 2009

Myrkrafurstinn er fremstur í rökræðulist náhirðarinnar. Í þrætubók hennar segir að ávallt skuli ráðist á persónuna sem er á öndverðum meiði. Aldrei að svara rökum á málefnalegan hátt. Ekkert er að marka skoðanakannanir því þær eru gerðar af „Baugsmiðlum”.

Múgurinn fyrir utan Seðlabankann og á Austurvelli er ofurseldur heilaþvotti „Baugsveldisins”. Samfylkingin og forseti Íslands ganga erinda „auðhringsins”. Spyrillinn hefur ekki kynnt sér málin. Annars myndi hann ekki spyrja svona og er því á lágu plani. „Næstu spurningu takk!” Langur listi hagfræðinga sem gagnrýnt hafa Seðlabankann er skipaður mönnum sem hafa lengi gagnrýnt bankann og sumir hafa verið á mála hjá hinum hrundu bönkum. Aðrir eru einnig vafasamir af öðrum ókunnum ástæðum.  

Í þrætubókarlist náhirðarinnar er þessi aðferð kölluð „að snúa vörn í sókn með því að ráðast á persónuna í stað þess að svara rökunum”.

Þessi tegund málflutnings er náskyld smjörklípunni sem á ensku útleggst „red herring” og er þar einnig leidd af samskiptum dýra og manna. Furstinn hafði það eftir ömmu sinni að gott ráð væri að leiða athygli kattarins frá einhverju með því að setja smjörklípu á skott hans. Enskir veiðimenn nota reykta síld þegar þeir vilja draga athygli veiðihundanna frá bráðinni, sem getur verið nauðsynlegt undir vissum kringumstæðum. Spyrillinn var settur í vanda þegar því var snúið upp á hann að hann hefði fyrir þáttinn látið þau ummæli falla að seðlabankafrumvarpið sneri aðeins um að koma einum manni úr bankanum. Spyrillinn þrætti fyrir, var svifaseinn og missti þráðinn. Smjörklípan klikkaði ekki í þetta skipti.

Fleiri trix voru notuð úr þrætubókinni: (1) „Ég er góður og gegn vegna þess að fjöldi fólks sem ekki vill náta nafns síns getið hefur leitað til mín og sagt mér að það treysti engum betur en mér.” (2) „Allir treysta Seðlabankanum því hann einn hélt öllu gangandi. Þetta vita þeir sem þekkja málið og vilja kynna sér það.” (3) „Margt á eftir að koma í ljós sem sýnir að ég hef alltaf haft rétt fyrir mér.”

Þó að furstinn sé manna fremstur í svona málflutningi er sagt að á Suðurheimskautinu finnist skrýtinn fugl sem sé honum jafnvel fremri í list  þrætubókarinnar. Sá segir í sífellu: „Ég er svart/hvít á litinn. Gömul sjónvarpstæki eru líka svart/hvít á litinn. Ég er því gamalt sjónvarpstæki en ekki mörgæs!”       



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?