Er Ísland vímuefnalaust? Er vatnaparadís í Úlfarsfelli? Fengu Reykvíkingar 250 þúsund króna eingreiðslu? Verða 20 prósent af skuldum okkar felld niður? Svarið við þessum spurningum er nokkuð einfalt: Nei.
Ástæðan fyrir því að ekkert af þessu hefur ræst er alls ekki að Framsóknarflokkurinn hafi ekki fengið nægileg völd í þjóðfélaginu. Fyrir þessi loforð voru Framsóknarmenn einmitt í stjórn. Það fer hins vegar ekki saman við að yfirlýsingar sama flokks rætist endilega. Því veruleikinn er annar fyrir og eftir kosningar.
Framsóknaflokkurinn er aftur kominn í gírinn. Nú lofar hann okkur niðurfellingu á 20% allra skulda heimilanna, og líka fyrirtækjanna. Aðeins niðurfelling skulda heimilanna kostar um 300 milljarða króna. Auðvitað hljómar þetta vel, alveg eins og vatnsleikjagarðurinn í Úlfarsfelli sem átti að byggja ef við slysuðumst til að kjósa Framsóknarflokkinn í Reykjavík í síðustu sveitarstjórnarkosningum. En þar er enginn vatnsleikjagarður núna. Samt komst Framsókn til valda.
Borgarbúar áttu líka að fá um 250 þúsund króna eingreiðslu ef þeir kysu Framsóknarflokkinn í sveitarstjórnarkosningunum, þegar hlutur borgarinnar í Landsvirkjun yrði seldur. Svarthöfði hefur ekki fengið neinn 250 þúsundkall. Annaðhvort er þetta samsæri samfélagsins gegn Svarthöfða, þar sem allir hafa fengið peninga nema hann, eða þá að Framsókn sveik þetta loforð líka.
Vímuefnalaust Ísland árið 2000 var eitt helsta kosningaloforð Framsóknarflokksins hér um árið. Það gekk síður en svo eftir. Vímuefnanotkun náði miklum hæðum árið 2000 þrátt fyrir allt. Aldrei hafði fleira ungt fólk farið á Vog en árið 2000, aldrei fleiri stórneytendur amfetamíns farið í meðferð og met voru slegin í notkun harðra fíkniefna. Aldrei nokkurn tímann höfðu fleiri notað e-pillur og kókaín en árið 2000. Eins og oft áður voru staðreyndirnar alveg öfugar við það sem Framsóknarflokkurinn lofaði.
Því telur Svarthöfði líklegast í sögulegu ljósi að afleiðingin af kjöri Framsóknarflokksins til áhrifa verði að við verðum einhvern veginn svipt 20 prósentum eigna okkar, eða að skuldirnar aukist einhvern veginn um 20 prósent. Það verður erfitt að toppa síðustu ár, en sagan segir að þeir muni finna leiðina.
Það gerist reyndar einstaka sinnum að kosningaloforð Framsóknar rætast. Þessir sjaldgæfu atburðir hafa hins vegar oft í för með sér miklar hamfarir, líkt og jin og jang alheimsins hafi verið raskað með gjörningi sem braut í bága við virkni veraldarinnar. Þetta þekkja þeir sem fengu að taka 90 prósenta húsnæðislán í boði flokksins og sitja nú í skuldafangelsi. Þetta þekkja hagfræðingar sem fylgst hafa með þróun efnahagsmála frá þessum gjörningi og frá stærstu framkvæmd Íslandssögunnar á Kárahnjúkum.
Vond eru þeirra svik, en verri er þeirra eftirfylgni.
Blogg
Ef við byggjum í Framsóknarheimi
08:19 › 25. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
