Svarthöfði fékk eitt af þessum þungu og köldu snjóflóðum yfir sál sína þegar hann frétti að Ídol-dómarinn Björn Jörundur hefði orðið uppvís að því að kaupa „ása“ og nokkra „tvíburabræður“ þeirra af manngarmi sem hlaut í vikunni dóm fyrir fíkniefnasölu. Ídolið er nefnilega uppáhaldssjónvarpsefni Svarthöfða þótt þátturinn sé vissulega á menningarlegu hallærisplani.
Svarthöfði hefur ekki síst haft ánægju af dómgæslu Björns Jörundar sem strax í fyrsta þætti bar höfuð og herðar yfir félaga sína Selmu og Jón góða. Svarthöfði hefur líka borið fullt traust til Björns og skarpra athugasemda hans. Þetta traust er nú farið og ljóst að þessi dómnefnd er jafnvanhæf og ríkisstjórn Geirs Haarde og getur ekki kveðið upp fleiri dóma yfir skrækróma unglingum sem vilja feta í fótspor Kalla Bjarna.
Nú þarf Pálmi, sjónvarpsstjóri á Stöð 2, að bregðast fljótt við áður en Svarthöfði og aðrir áhorfendur með nýfundna réttlætiskennd, eftir bankahrunið, skipti af Stjörnuleitinni yfir á Útsvarið hjá RÚV. Þá er ekki síður mikilvægt að girða fyrir að Aron Pálmi og fleiri Ídol-taparar safnist saman með potta og sleifar í Skaftahlíðinni og öskri „vanhæf dómnefnd!“, skeri sundur rafmagnskapla og valdi þannig Ara Edwald óþarfa búsifjum. Dómnefndin verður að víkja.
Skipti á dómurum í miðjum leik geta verið flókin en í þessu tilfelli er hægt að gera þetta svo auðveldlega að áhorfendum mun hvergi bregða. Þvert á móti er hægt að kasta þessum þremur út og fá inn annað tríó sem bíður tilbúið hjá samkeppnisaðilanum í Efstaleiti og mun slá út allar fyrri dómnefndir sem þó hafa skartað ekki minni mönnum en Einari Bárðar og Bubba Morthens.
Þríeykið í Kiljunni er svo fullkomið Ídol-dómaragengi að halda mætti að frummyndin, American Idol, hafi verið höfð til hliðsjónar þegar Egill Helgason valdi þau Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Pál Baldvin Baldvinsson til þess að spjalla við sig um bækur.
Egill getur vel fyllt skarð hins digra en góðlega Randy sem er allajafna í góðu skapi en á það til að snöggreiðast. Páll Baldvin getur orðið svo eitraður og fýldur að sjálfur Simon Cowell fölnar í samanburðinum og Kolbrún Bergþórsdóttir minnir um margt á Paulu Abdul. Kolbrún getur vissulega verið ákveðnari en Soffía frænka og segir alltaf það sem henni í brjósti býr en sem betur fer á hún það sameiginlegt með Paulu að vera sérlega aumingjagóð og mun því tala móðurlega niður til bólugrafinna unglinga með stóra framadrauma.
Íslenska Ídolinu er því borgið ef Pálmi fær Palla og Þórhall á RÚV til að skipta við sig á þremenningum. Best af öllu er svo að allir græða. Ídolið heldur reisn og trúverðugleika fyrir að taka strax á málum og á meðan Egill og félagar lyfta því á æðra menningarplan fær Kiljan metáhorf þegar Jón, Selma og Björn Jörundur fara að úttala sig um bókmenntir.
Blogg
Út af með dómarann!
08:12 › 20. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
