ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Iðrun og yfirbót

08:21 › 19. febrúar 2009

Fallnir ráðamenn hafa nú tekið þann göfuga pól í hæðina að biðja almenning fyrirgefningar á því að hafa komið hér öllu í kaldakol. Þingmennirnir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson hafa öll stigið þetta mikilvæga skref inn í hreinsunareldinn. Enn standa þó heiðursmenn á borð við Geir Haarde, Ingibjörgu Sólrún Gísladóttur, Davíð Oddsson og Björn Bjarnason álengdar og þverskallast við að iðrast þess að hafa steypt lýðveldinu í fjárhagslega glötun.

Svarthöfði er með nokkrar tillögur um að ráðamenn og aðrir biðjist afsökunar. Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, tilheyrir hinni öflugu og rómuðu náhirð Davíðs Oddssonar og er syndum hlaðinn eftir langa valdatíð. Hann gæti byrjað á því að biðjast afsökunar á því að hafa skipað frændur og vini Davíðs sem dómara í landinu. Svo gæti hann beðist afsökunar á því að hafa haldið spilltum, árásarhneigðum ríkislögreglustjóra í embætti. Hann mætti einnig nefna einelti sitt á hendur ákveðnum auðmönnum jafnframt því að horfast í augu við að hann hefur haldið hlífiskildi yfir öðrum af sama toga. Enginn vafi er á því að Björn gæti fengið fyrirgefningu synda sinna ef hann aðeins iðraðist og gerði yfirbót í aðvífandi ellinni.

Annþór Karlsson, fyrrverandi handrukkari, hefur iðrast eins og nokkrir ráðherranna. Annþór rekur, þvert á ráðherrana, mistök sín til neyslu á vímuefnum og tilheyrandi stjórnleysis og firringu. En hann er í grunninn skynsamur og vel þenkjandi maður og þess vegna hættur að drekka og dópa. Skynsemi hans verður til þess að hann gerir sér grein fyrir því að honum myndi ekki endast ævin til að biðja alla afsökunar. Hann iðrast því opinberlega í fjölmiðlum og nær þannig til margra í senn.

Davíð Oddsson gæti farið sömu leið og Annþór og notað fjölmiðla til að breiða út beiðni sína um fyrirgefningu. Alltof langt mál yrði að telja upp alla möguleika hans til að tíunda afglöp og axarsköft á langri tíð hans sem valdamaður. Því væri hreinlegast hjá honum að ávarpa þjóðina alla í senn.

Nú skal því haldið til haga að ráðherrar Íslands hafa fæstir áfengis- eða dópneyslu sér til afsökunar. Flestir eru þeir reglumenn og gerðu afglöp sín með galopnum og skýrum huga. Þess meiri ástæða er til þess að fara í hreinsunareldinn í þeirri von að þeir komi út alfiðraðir og glansandi, tilbúnir að taka aftur við stjórntaumunum.

Ein stærsta dyggð mannskepnunnar er að átta sig á eigin brestum. Þar skiptir engu máli hvort hún hefur handrukkað eða framið landráð af gáleysi. Sá maður sem gengst við eigin syndum ætti að vera öllum öðrum fyrirmynd í mörgu. Þetta ættu þeir að íhuga sem nú glíma við afneitun og iðrast í engu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?