Í gegnum tíðina hefur Andrés Önd þolað ítrekuð kjarasamningsbrot af hálfu auðjöfursins Jóakims Aðalandar. Hann hefur þurft að lepja dauðann úr skel vegna smánarlegra launa sem hann fær greidd fyrir erfiðisvinnu. Þegar Andrés finnur fjársjóð fyrir Jóakim tekur Jóakim allan gróðann, en þegar allt bregst tekur Andrés skellinn. Andrés Önd er alþýðan holdi klædd.
Íslenskum auðjöfrum er ekkert heilagt. Það var Svarthöfða endanlega ljóst þegar hann fregnaði að Björgólfur Guðmundsson hefði skuldsett Andrés Önd og félaga um 400 milljónir króna. Og að síðan ætti að fella niður 300 milljónir af skuldunum. Auðjöfrarnir veðsettu allt: Auðlindina, fyrirtækin, heimili fólks og framtíð þjóðarinnar. Veðsetningin á Andrési Önd er tákngervingur fyrir óskammfeilni hinnar óprúttnu yfirstéttar.
Svarthöfða hefur oft liðið eins og Andrési Önd. Þegar færibandsvinnu hans lýkur, eins og hjá Andrési í smjörlíkisverksmiðjunni, keyrir Svarthöfði heim á ljóta smábílnum sínum. Hann lendir iðulega í því að Range Roverar svína á honum, bruna aftan að honum, flauta á hann svo hann fari hraðar og skvetta yfir hann úr pollum. Range Roverarnir keyra um eins og þeir eigi hraðbrautina. En þeir áttu aldrei neitt í raun. Fengu það bara að láni, með veð í venjulega fólkinu. Hegðun þeirra er í besta falli andfélagsleg.
Í nokkur skipti hefur Svarthöfði farið í göngutúr í miðbænum og þurft að stökkva undan Range Roverunum sem keyra jafnvel upp á gangstéttir á ógnarhraða til að komast sem fljótast í vinnuna til að millifæra meiri lán inn í landið. Árið 2007 var það þannig að ef einhver lagði ólöglega í miðborginni voru yfirgnæfandi líkur á að það væri Range Rover eða önnur bifreið sem kostar meira en 7 milljónir króna.
Það var ekki þannig að fátæku síbrotamennirnir væru siðlausastir í hversdagslegum athöfnum eins og að keyra og leggja bifreið. Enda munaði moldríku bankamennina lítið um umferðar- og stöðumælasektir upp á nokkra þúsundkalla. Ríka fólkið lét eins og það ætti Ísland og því var skítsama um hina. Samt gerði þetta fólk lítið annað en að skuldsetja Andrésa þessa lands og hagræða bókhaldinu.
Venjulegir Íslendingar gerðu ekkert rangt, en þurfa að gjalda fyrir siðleysi bankamanna. Svarthöfði undrast ekki að margir hyggist flýja land vegna óréttlætisins. Þetta eru einmitt algeng viðbrögð hjá Andrési Önd þegar heimurinn hrynur í kringum hann. Svarthöfði hefur, eins og Andrés, fyrst og fremst tvo valkosti í ástandinu. Hvort á hann að flytja til Fjarskanistans eða Langt-burtistans?
Blogg
Við og Andrés
08:22 › 13. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
