Hælbítar og hýenur keppast nú við að níða skóinn af okkar forkunnarfögru og indælu forsetafrú. Menn hneykslast á henni við hvert tækifæri og láta í það skína að Dorrit Moussaieff gangi ekki í takt við íslenskt þjóðfélag, sé jafnvel Marie Antoinette okkar tíma. Hjartað sekkur í Svarthöfða í hvert skipti sem þessar raddir heyrast, því sjaldan eða nokkurn tíma hefur jafn glæsileg og jafn alþýðleg kona prýtt íslenskt þjóðlíf.
Svarthöfði verður nefnilega að gera smá játningu í þessum skrifum sínum. Svarthöfði er bálskotinn í forsetafrúnni. Svo hefur hún heillað hann með líflegri og fölskvalausri framkomu sinni. Í gamla daga réð alvarleikinn ríkjum á Bessastöðum, í dag ríkir þar líf og fjör. Og engum er meira að þakka þessi umskipti en Dorrit Moussaieff sem hefur svo sannarlega verið lyftistöng fyrir land og þjóð. Auðvitað verða einhverjir til að kvarta undan því að ríkidæmi hennar sé ekki í neinum takt við þær þrengingar sem Íslendingar ganga nú í gegnum. Og vissulega er ekki algengt að sagt sé frá því í viðtölum við fyrirmenni þjóðarinnar að þau hafi verið tekin við borð sem svignuðu undan kræsingunum, léttu víni og dýrum kavíar. Óneitanlega eru þeir til sem sjá aldrei lengra en þetta, sjá rautt eins og dulu væri veifað frammi fyrir nauti. En fólk verður nú stundum að sætta sig við að öllu því góða fylgir oftast eitthvað sem rís ekki jafn hátt. Og auðvitað er það líka þannig með okkar frábæru forsetafrú.
Dorrit hefur verið hvers manns hugljúfi árum saman. Þeir sem fylgst hafa með lífinu á Bessastöðum hafa séð hversu mjög hefur birt yfir forsetaembættinu síðan þessi gleðigjafi kom til sögunnar. Hvar sem hún hefur birst hefur mátt treysta því að fólk verður brosmildara en ella. Hún bregður á leik og skemmtir fólki. Um hana má óneitanlega segja að hún geti náttmyrkri í birtu breytt. Þess vegna er svo mikilvægt að fólk hreki hana Dorrit okkar ekki úr landi. Þrátt fyrir að illa gangi í efnahagsmálum og einhverjum sárni ummæli hennar verðum við að gera okkur grein fyrir því að íslenskt samfélag væri fátækara án Dorritar.
Blogg
Don't Go Dorrit!
08:28 › 11. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
