Eftir allt japlið, jammið, garnagaulið og fuðrið í kringum Icesave og allar þær ótal dýrmætu klukkustundir í lífi þjóðar á ystu nöf sem hafa glatast er Svarthöfði löngu búinn að gefa upp alla von um að leiðtogar stjórnarandstöðunnar taki síðbúinn andlegan þroskakipp og hætti að hegða sér eins og smábörn sem finnst ekkert sjálfsagðara en að Gerber-perumauki sé mokað upp í þau með silfurskeiðum.
Svarthöfði lét sér því ekki bregða þegar hann heyrði karlmannlegasta vælukjóann í stjórnarandstöðunni grenja yfir því í útvarpinu um helgina að hér væri eiginlega bara allt í himna lagi ef allir þessir voðalega vondu útlendingar væru ekki alltaf með eitthvert svakalegt samsærisbrölt í gangi gegn Íslendingum. Auðvitað þarf ansi stóran skammt af mikilmennskubrjálæði sjálfstæðismanna til þess að keyra áfram þá geggjuðu vænisýki að heimurinn allur nenni yfirleitt að standa í því að plotta endalaust gegn þrjú hundruð þúsund hræðum lengst norður í ballarhafi. En það er nú einmitt þetta stórmennskubrjálæði íslenskra íhaldsmanna sem á einna stærstan þátt í því hversu illa er fyrir okkur komið þannig að það er svo sem ekki við neinu öðru að búast úr þessum ranni.
Formaður sjálfstæðismanna glímir þó því miður við verri kvilla en paranoju en í þessu sama útvarpsspjalli tók hann af öll tvímæli um að hann hefur endanlega sagt skilið við raunveruleikann. Nú er hann sem sagt búinn að komast að því að einkavæðing bankanna hafi ekki neitt haft með það að gera að íslenska bankakerfið hrundi til grunna fyrir rúmu ári.
Aldeilis ekki. Íslendingar gera nefnilega aldrei neitt rangt og hér væri allt í lukkunnar velstandi ef þessir andskotans útlendingar þyrftu ekki alltaf að vera með eitthvert samsæri í gangi. Þegar Svarthöfði reynir að setja sig inn í hugarheim Bjarna Benediktssonar furðar hann sig eiginlega einna helst á því hvers vegna vondu mennirnir í Bretlandi og Hollandi eru ekki löngu búnir að hernema Ísland. Þeir þurfa varla nema eitt símtal til NATO og annað til Norðurlandaráðs. Sjálfsagt er auðveldara að fá að senda fjölþjóðlegt herlið til Íslands en Írak en þá verður að vísu að taka tillit til þess að orðrómurinn um að á Íslandi leynist efnahagsleg gereyðingarvopn hefur fengist staðfestur. Þá má ekki heldur gleyma því að kannski er bara ekkert eðlilegra en siðmenntaðar þjóðir sameinist gegn hrokafullum skríl sem styður heils hugar samsæri nokkurra tærra snillinga um að ræna breska og hollenska sparifjáreigendur og nokkur líknarfélög í leiðinni.
Þegar kaldur raunveruleikinn er svona leiðinlegur er miklu betra að snúa baki við honum, hegða sér eins og frekt smábarn á Alþingi og lifa í skáldskapnum þar sem Íslendingar eru æði og allir hinir eru voða, voða vondir.
Löngu, löngu fyrir hrun lagði Halldór Laxness einni sögupersónu sinni þau orð í munn að sá sem ekki lifir í skáldskap lifir ekki af hér á jörðinni. Nú er hins vegar allt komið á hvolf og því þarf að endurskoða orð nóbelskáldsins með það í huga að sá sem ætlar að kúra sig ofan í skáldskap nær ekki neinum árangri í uppbyggingu landsins eftir hrun.
Svarthöfði gengur sem fyrr segir að því gefnu að útilokað sé að Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð og Birgitta Jónsdóttir finni sér leið út úr því skáldskaparvíti sem þau hafa spunnið í kringum sig. Þessi vitleysa og heilaspuni er líka svo yfirgengilegur að sérfræðingur á borð við Dan Brown gæti ekki greitt úr þessari flækju. Svarthöfði hefur hins vegar öllu meiri áhyggjur af því að annar eins andans jöfur og Einar Már Guðmundsson skuli vera týndur í sama hallærisplottinu og þremenningarnir ringluðu. Það er nefnilega helst í skáldskap höfunda í meistaraflokki Einars Más sem fólk getur lifað og þess vegna fannst Svarthöfða skelfilegt að hlusta á barnalegt jarmið úr stjórnarandstöðunni bergmála úr munni Einars Más í Silfri Egils á sunnudaginn.
Skáldið vill ekki að þjóðin taki ábyrgð á gjörðum skúrka sinna sem fóru fram með fullum stuðningi ríkis og nánast kirkju líka vegna þess að enginn spurði Einar Má Guðmundsson hvort þetta væri í lagi. Komon! Þurfum við að byrja alveg á byrjuninni? Einu sinni var lítil gul hæna...
Blogg
Lifað í skáldskap
22:41 › 7. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
