ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Útrásarvíkingar misnotuðu mig

17:41 › 2. desember 2009

Forseti Ísland greindi frá því á þriðjudagsmorgun að útrásarvíkingar hefðu misnotað traust hans. Svarthöfði vill þakka forsetanum fyrir hugdirfskuna, því það er ekki auðvelt að stíga svona fram. Um leið má forsetinn vita að hann er ekki einn. Svarthöfði var líka misnotaður af útrásarvíkingum.

Þeir létu mig fljúga með einkaflugvélum um allan heim. Svo létu þeir mig bjóða sér á einkafundi og þröngvuðu upp á mig styrkjum í þágu góðra málefna. Þeir létu mig djamma í hásölum menningarinnar með frægasta fólki í heimi. Þeir létu mig drekka kampavín og tróðu ofan í mig kavíar í tíu þúsund fetum. Og ég drekk ekki einu sinni kampavín!

Ég var píndur tvisvar til Pétursborgar til að styðja Björgólfsfeðgana. Svo var ég dreginn til Danmerkur með einkaþotu 2007 og notaður sem leikmunur í leikriti FL Group. Ég var brottnuminn til Búlgaríu með Novator-þotunni og látinn básúna um ágæti íslenskra fyrirtækja, meðan Björgólfur Thor tók sér stöðu í spilltu viðskiptalífinu. Ég var dreginn á asnaeyrunum til Leeds til að leggja blessun yfir starfsemi Eimskipafélagsins. Mér var komið til Katar á sama tíma og Sigurður Einarsson plottaði einhvern leik með sjeik. Svo var ég sjanghæjaður til Sjanghæ 2007 og ég hlutgerður sem tákn þjóðarinnar í útrás Glitnis í Kína. Fluttur var ég nauðugur til New York og mér haldið í hálfgerðri gíslingu í glæsiveislu Glitnis 2007. Þar létu þeir mig mæra sig!

Þá létu þeir mig halda ræður um eðlislæga snilld þeirra, sem væri öðrum þjóðum meiri. Þeir gerðu mig að rasista. Ég var látinn segja: „Útrásin er byggð á hæfni og getu, þjálfun og þroska sem einstaklingar hafa hlotið og samtakamætti sem löngum hefur verið styrkur okkar Íslendinga.“ Og: „Lykillinn að árangrinum sem útrásin hefur skilað er fólginn í menningunni, arfleifðinni sem nýjar kynslóðir hlutu í vöggugjöf!“ Og svo: „Raunar má leika sér með þá hugsun að landnámsöldin sé á vissan hátt upphafið að þessu öllu saman!!“

Eftir að hafa verið ferjaður um allan heim og misnotaður sem strengjabrúða útrásarvíkinga var ég loks dreginn til ábyrgðar. En þetta var ekki mér að kenna. Þeir létu mig gera þetta!

Ég, sem var kommúnisti, er kallaður útrásargrúppía. Eins og nunna sem gerist gleðikona. En enginn þekkir betur en ég kvalir hins kampavínsfyllta maga sem tekur á loft í einkaþotu og lendir á víxl. Enginn veit eins og ég hversu útsmognir útrásarvíkingar geta verið þegar þeir draga mann á tálar og nema mann á brott í hildarleik hórdómsins. Á daginn mærði ég útrásarvíkingana út um allan heim, en á kvöldin lá ég í fósturstellingu á sturtubotni úr marmara á mestu lúxushótelum veraldar.

Ólafur,  þú ert ekki einn!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?