ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Leikur að orðum

21:41 › 18. desember 2009

Mikið hrikalega hlýtur fólkinu á auglýsingastofunum og í almannatengslafyrirtækjunum að finnast gaman að gera grín að almenningi. Og mikið væri gaman að vita hvort stjórnendur stórfyrirtækjanna sem það vinnur fyrir fatta brandarann eða eru alveg jafnauðtrúa og spunameistararnir halda að við hin séum.

Alveg er það magnað hvað forsvarsmenn fyrirtækja geta komið fram og útskýrt stefnu fyrirtækisins og manngæsku í hvert sinn sem gengið er í gegnum erfiðleika eða hneykslismál. Var það ekki til dæmis uppörvandi að heyra Finn Sveinbjörnsson lýsa einkunnarorðum og stefnu Arion banka sem færðu okkur loforð um fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð? Verða vitni að svona mikilli breytingu frá fyrri tíð.

Og hvernig var þá að lesa auglýsingarnar hans Ásmundar Stefánssonar þar sem hann sagði okkur að Landsbankinn stæði fyrir virðingu, heilindum, fagmennsku og eldmóði?

En við skulum ekki gera lítið úr minni fyrirtækjum og keðjum. Kaffitár selur fólki kaffi og te á uppsprengdu verði. En ekki bara hvaða kaffi sem er. Þetta er sko alvörukaffi með sinn sérstaka karakter. Eða getur maður annað en heillast af kaffi sem fær þessa umsögn: „Kaffi frá Indónesíu er hægt að lýsa sem hægu haustveðri við strendur regnskóga. Þungt og drungalegt með mikilli fyllingu.“ Vá, Svarthöfði verður í senn þyrstur og fullur eftirvæntingar og ævintýraþrár bara við lesturinn, hvernig ætli það verði þá þegar kaffið er drukkið?

Og hvað með fyrirtækjanöfnin? Er ekki hreint stórkostleg hugsun í nöfnunum N1, B2, C3 og A4? Allt í lagi, allt í lagi. Ég skal viðurkenna það. C3 er ekki fyrirtæki heldur smábíll frá Citroen. En hinir stafirnir og tölurnar eru allt nöfn á fyrirtækjum. Í alvöru, ég er ekki að plata. Passið ykkur bara að rugla ekki B2, sem er starfsmannaleiga, við 2B, sem er tenglasíða á netinu.

En snúum okkur aftur að bönkunum sem hafa hver á fætur öðrum tekið upp glæsileg og jákvæð einkunnarorð. Og vaknar þá einföld spurning: Hver ætli hafi verið einkunnarorð bankanna fyrir hrun? Einhvern veginn efast Svarthöfði um að bankastjórar hafi einhvern tíma lýst fjálglega einkunnarorðunum: Græðgi - óráðsía - eyðslugleði - skammtímahugsun.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.