Framsóknarflokkurinn hefur verið sprækasta risaeðlan á Alþingi eftir að gamla bændaliðinu var að mestu skipt út fyrir sprelligosana Sigmund Davíð og Höskuld Þórhallsson. Eftir hrun komst í tísku að skella orðinu „nýja“ fyrir framan allt gamalt drasl á Íslandi og með þeirri einföldu aðgerð átti að bjarga landinu. Gömlu, ömurlegu bankarnir, sem fóru á hausinn og tóku þjóðina með sér í fallinu, urðu að nýjum bönkum þótt þeir væru auðvitað ennþá alveg sama drasið. Þessi falska endurnýjunarárátta gekk meira að segja svo langt að fólk fór að tala um eitthvert Nýja Ísland. Á daginn hefur svo auðvitað komið að Ísland er enn sama gamla draslið sem stefnir lóðbeint í ruslflokk á meðan alþingismenn gjamma sig hása sólarhringum saman.
Samviska og fortíð Framsóknarflokksins er vitaskuld sótsvört þannig að gamli sérhagsmunagæsluflokkurinn stökk að sjálfsögðu á nýjabrumsvagninn. Valgerði og Guðna var mokað út ásamt Bjarna Harðarsyni sem var hálfgerður forngripur þótt hann væri glænýr á þingi. Síðan var bara skipt um haus og uppfærður Framsóknarflokkur var kynntur til sögunnar fyrir 21. öldina.
Hið galsafengna tvíeyki Höskuldur og Sigmundur Davíð fékk óskabyrjun og þeir hafa eiginlega leyst landvættina af í linnulausi varnarbaráttu fyrir sína hrjáðu þjóð. Þeir félagar hafa látið einskis ófreistað og fóru meira að segja til fundar við flokksbróður sinn, norskan afdalabónda, til þess að reyna að fá lánaða voða mikla peninga til þess að skera Íslendinga úr Icesave-snörunni. Þá efast auðvitað ekki nokkur manneskja um að þeim gangi gott eitt til þegar þeir standa froðufellandi í ræðustóli á hinu háa Alþingi og finna Icesave-samningnum allt til foráttu. Eða hvað?
Þessir vösku sveinar sitja auðvitað uppi með það að í gegnum tíðina hafa framsóknarmenn aldrei gert neitt af heilum hug nema einhver flokksbróðir þeirra eða félagi komist fyrir vikið um leið í álnir eða mikið fé. Ungu mennirnir í gamla flokknum með nýja hausnum voru komnir langleiðina með að hrekja af sér þetta gamla slyðruorð þangað til þeim varð fótaskortur á pólitíska svellinu í vikunni þegar þeir gleymdu sér í augnablik og þvottekta, gamaldags framsóknarkarlremba vall út úr þeim úr ræðustóli. Formaðurinn nútímalegi gerði lítið úr mælskubrögðum Jóhönnu forsætisráðherra þegar hann gaf í skyn að hún semdi ræðurnar sínar ekki sjálf. Þetta þykir að vísu ekki stórmál úti í hinum stóra heimi þar sem verseraðir stjórnmálaleiðtogar hafa her ræðuskrifara á sínum snærum. Tortryggnir femínistar hafa hins vegar lesið það á milli línanna hjá Sigmundi að hann haldi að Jóhanna geti ekki skrifað ræðu vegna þess að hún er kona.
Hinn hressi gaurinn bætti svo um betur þegar hann taldi víst að Jóhanna væri ekki í þingsal vegna þess að hún væri heima að baka. Fleiri vitnanna þarf ekki við. Framsóknarflokkurinn er enn sama karlrembuvígið og ungu mennirnir eru engu betri framsóknarmenn en gamli formaðurinn Guðni Ágústsson sem taldi konur best geymdar bak við eldavélina.
Þeir félagar köstuðu þarna óvart í málæðinu nýju, fínu sauðagærunni sinni og sýndu í klær gamla framsóknarvargsins þannig að nú þarf að endurskoða öll þeirra verk og orð í því ljósi að þeir eru mosagrónir afdalabændur í flottum jakkafötum og berjast því væntanlega bara fyrir liðið sitt, Framsóknarflokkinn, óháð þjóðarhag og almannaheill.
Blogg
Framsókn afturábak
20:05 › 11. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
