ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Davíð og Kleopatra

12:21 › 9. nóvember 2009

Ein er sú kona á landi hér sem gáfuðust er. Hún er forstjóri Gunnars Majóness. Fylgismenn Kleopötru segja að fólk bukti sig og beygi í djúpri lotningu og virðingu fyrir henni. Karlmenn missa ráð og rænu og svitna, við það eitt að sjá móta fyrir henni.
Svarthöfði hefur aðeins séð viðlíka lýsingar á tveimur manneskjum, eða hálfmennskum goðum; Jesús Kristi og Davíð Oddssyni. Svo segir í lýsingum fylgismanna Kleopötru: „Hún er svo ótrúlega vakandi og lifandi, ótrúlega vel gefin, hress, skemmtileg, hlý og góð... Allir vilja tala við Kleopötru, dansa við hana, þó ekki væri nema aðeins að snerta hana.“ Sjálf segir Kleopatra að allir vilji faðma hana. Þetta er ekki ólíkt lýsingum Davíðs Oddssonar á þeirri gríðarlegu velvild meðal almennings sem hann varð var við eftir hrunið, og sem hann lýsti í Kastljóssviðtali við Sigmar Guðmundsson 24. febrúar síðastliðinn.

Davíð hefur oft bent á djúpstæð vandamál þeirra sem gagnrýna hann. Ef fólk er ósammála honum eru það ýmist á valdi Baugsveldisins, eða jafnvel lesblint eða heyrnarlaust, eins og hann lýsti í viðtali við Sölva Tryggvason fyrir nokkrum vikum. Kleopatra bendir á aðra fötlun gagnrýnenda hennar. „Óvildarmenn mínir vilja greinilega hefna sín á mér og það fólk er andlega veikt.“

Kleópatra þykir fremri rithöfundur en allir aðrir. Hún skrifaði „bestu bók sem til er,“ samkvæmt eiganda Gunnars Majoness. Davíð þótti svo fær höfundur að ekki varð umflúið að gera kvikmynd eftir handriti hans um Opinberun Hannesar. Þó var ekki um að ræða opinberun Hannesar Hólmsteins um ágæti frjálshyggjunnar og atgervi Davíðs sjálfs, sem hefði orðið biblíuleg epík.

Svo segir um Davíð í guðspjalli Hannesar Hólmsteins 28: 06: 08: „Davíð Oddsson er svo öflugur maður, að hann hefur ekki glatað áhrifum sínum, þótt hann sé ekki lengur í fylkingarbrjósti í stjórnmálum. Rætur áhrifa hans eru tvíþættar. Í fyrsta lagi nýtur hann mikillar virðingar og trausts þorra þjóðarinnar, þótt orðastrákar á kaupi hjá óvinum hans reyni að gera lítið úr því. Menn vita, hversu heill Davíð er og heiðarlegur, hreinn og beinn og hræsnislaus. Í öðru lagi gegnir Davíð auðvitað enn lykilstöðu sem bankastjóri Seðlabankans. Hann hefur átt drjúgan þátt í því, að bankarnir virðast vera að komast út úr þeirri kreppu, sem þeir voru í. Vandlega er hlustað á Davíð í hinum alþjóðlega peninga- og bankaheimi.“

Davíð nýtur sum sé virðingar jafnt almúgans sem alþjóðlegra aðalsmanna. Áhrifa hans gætir jafnvel þótt hann sé ekki á staðnum, kannski ekki svo ólíkt Drottni almáttugum. Og Jesús Kristur sjálfur sló fyrst almennilega í gegn eftir að hann var krossfestur. Davíð leiðir þjóðina út úr kreppu, líkt og Móses sem klauf Rauðahafið. Þessi orð Hannesar voru reyndar skrifuð þremur mánuðum áður en Davíð leiddi Seðlabankann í 300 milljarða króna gjaldþrot og þjóðin sökk til botns.

Svarthöfði fyllist alltaf tortryggni þegar annað fólk fyllist lotningu gagnvart öðrum. Var einhver dáðari af fylgismönnum sínum en David Koresh, sem leiddi þá til guðs með dýrðlegum hætti í Waco í Texas 19. apríl 1993? Þótti einhver vera öflugri og gáfaðri af fylgismönnum sínum en Adolf Hitler? Það allra versta í mannkynssögunni hefur gerst undir traustri handleiðslu sterks leiðtoga. En kannski er Svarthöfði bara lesblint, heyrnarlaust og andlega veikt handbendi Baugs.

Nú er það ekki þannig að Svarthöfði óttist að majónesið fari úr böndunum. En miðað við lýsingar lærisveina Kleópötru er nánast óumflýjanlegt að hún fylli það skarð í hjarta þjóðarinnar sem Davíð skildi eftir sig. Kleópatra fagnar skynseminni og hafnar nautnalífinu. Hún er 2009. Bara að hugsjónir Kleopötru endi ekki í kokteilsósu eins og Borgarahreyfingin og frjálshyggjan.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?