ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Varúð: Súlur

08:17 › 6. nóvember 2009

Svarthöfði er sleginn eftir að hafa lesið frétt um hrakfarir útsendara KSÍ sem tapaði rúmum átta milljónum á næturrölti sínu í Sviss. Samkvæmt þarlendum miðlum villtist hann inn á hættulegar brautir með þeim Evu, Loru og Carmen sem virðast vera hinar skæðustu tálkonur vegna þess að þær drekka bara kampavín sem kostar hundrað þúsund kall flaskan.

Skynsamir menn vita að aldrei borgar sig, hvorki fjárhagslega né siðferðislega, að reyna að skemmta sér með konum með svona dýran smekk og Svarthöfði prísar sig nú sælan að hafa ekki þurft að leggja út fyrir nema þremur tvöföldum vodka í kók til þess að krækja í hana Svarthöfðu sína.

Þessi sexfaldi vodki er einhver besta fjárfesting sem Svarthöfði hefur gert vegna þess að alla tíð síðan hefur Svarthöfða haldið honum góðum og glöðum og hann hefur því ekki þurft að leggjast svo lágt að lokka til sín súlustúlkur með ómerkilegu Asti Gancia á svívirðilegu verði.

Svarthöfði veit líka upp á sína tíu fingur að það borgar sig aldrei að spóka sig í rauðum hverfum, hvorki í Amsterdam, Sviss eða Kópavogi. Reikningurinn verður alltaf svimandi hvort sem maður fær allt sem maður greiðir fyrir eða lendir í klónum á skipulögðum glæpamönnum sem smyrja vel ofan á hverja VISA-færslu.

Þeir vesalingar sem villast út á þessa braut eiga heldur aldrei neinar varnir en sjálfsagt er ekkert verra að vísa á skipulagða krimma en reyna að halda því fram að manni hafi verið byrluð ólyfan eins og ólánssámur súlustaðagestur reyndi fyrir nokkrum árum.

Sá virtist þó alveg pollrólegur yfir óförum sínum við súluna þangað til konan hans sá VISA-reikninginn. Þá rifjaðist skyndilega upp fyrir honum að hann hafði líklega drukkið smjörsýru með freyðivíninu og óprúttnir aðilar (skipulagðir glæpamenn væntanlega) hafi gert sér það að leik að strauja kortið hans í gríð og erg þar til dagur reis á meðan okkar maður svaf hinn rólegasti lyfjasvefni í örmum Evu, Loru eða Carmenar.
Maðurinn bar harm sinn á torg í fylgd eiginkonunnar sem virtist meira misboðið yfir því að manninum skyldi hafa verið byrluð ólyfjan en að honum hafi dottið það í fyrsta lagi til hugar að spóka sig vopnaður greiðslukorti í súlufrumskógi holdsins lystisemda.

Kannski slapp þessi fyrir horn og kannski sleppur íslenski boltakallinn með skrekkinn líka og feitan bakreikning en burtséð frá því sitja báðir uppi með að hafa farið með fúsum og frjálsum vilja inn á vafasamar brautir þar sem menn mega eiga á öllu von. Og í því sambandi stoðar lítið að ætla að fegra sinn hlut með smjörsýru og atvinnuglæpamönnum. Bömmer beggja virðist því ekki vera að þeir eyddu pening í freyðivín með súludömum, heldur hversu miklu þeir eyddu. Þetta er aumt og svona gaurum væri hollast að taka Svarthöfða sér til fyrirmyndar og halda sig heima við þegar löngunin til að bregða undir sig miðfætinum blossar upp.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?