Kannski er bara best að halda sig við Football Manager, þá er alla vega víst að sama hvað maður gerir í leikmannamálum er víst að maður fær ekki dóm á sig fyrir að vera ráðríkur og frekur. Þannig getur maður selt leikmenn út og suður og farið með úrvalsdeildarlið langleiðina í neðstu deild án þess að kveðinn verði upp sá dómur að maður sé slettireka.
Þó Svarthöfði hafi löngum leikið sér í Football Manager, Championship Manager, Ultimate Manager og öllum þessum snilldar fótboltaþjálfaraleikjum verður því ekki neitað að hann öfundaði dálítið þá Björgólf Guðmundsson og Eggert Magnússon þegar þeir keyptu West Ham. Þetta eru menn sem létu sér ekki nægja að fá útrás fyrir dagdraumana í tölvuleikjum heldur keyptu sér heilt fótboltalið til að leika sér með. Það er auðvitað miklu svalara að eiga enskt úrvalsdeildarlið og geta keypt og selt raunverulega leikmenn heldur en að setjast niður við tölvuna síðla kvölds til að leika sér í tölvunni. (En höfum það samt alveg á hreinu að það er ekkert barnalegt við að miðaldra og þaðan af eldri menn leiki sér í tölvuleikjum.)
En gamanið getur kárnað í alvörunni þegar sígur á ógæfuhliðina í raunveruleikanum. Og þarf jafnvel ekki að vera ýkja slæm staða. Það getur meira að segja komið manni í koll að verða vinsæll meðal stuðningsmanna liðsins. Þannig getur aðaleigandinn kallað mann Coca Cola-skilti og síðan rekið mann fyrir að eyða of miklum peningum. Og allt fyrir að semja við Freddie Ljungberg, eina bestu ljósmyndafyrirsætu sem iðkað hefur knattlist sína á enskum knattspyrnuvöllum.
Og þó fótboltamenn viti að ekki þýði að deila við dómarann er ekki fjarri lagi að mann kynni að langa að rífa smá kjaft ef maður fengi á sig svipaðan dóm og fyrrverandi ráðamenn West Ham fengu í gær. Þegar einhver breskur dómari taldi sig þess umkominn að segja að maður væri að skipta sér of mikið af og trufla manninn sem maður hafði ráðið sem knattspyrnustjóra. Eða hvað heldur Alan Curbishley að hann viti um fótbolta sem góðir og gegnir Valsarar og KR-ingar vita ekki?
Og eftir stendur að peningurinn er gufaður upp, aðrir teknir við stjórn fótboltafélagsins og dýrðin hefur á köflum breyst í háðung. Já, það er kannski betra að spila Football Manager heldur en kaupa alvöru fótboltalið, því í Football Manager getur maður alltaf byrjað upp á nýtt, startað nýjum leik og leiðrétt þau mistök sem maður hefur gert áður. Án þess að tapa krónu... eða dómsmáli.
Blogg
Game Over
08:26 › 4. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
