ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 5m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Jóla hvað?

20:24 › 27. nóvember 2009

Aðventan er versti tími ársins í huga Svarthöfða og hingað til hefur hann aldrei verið viðskotaverri en í aðdraganda jólanna. Auðvitað hefur Svarthöfði samt ekki verið svo skyni skroppinn að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að í innsta kjarna jólaandans leynist eitthvað voðalega göfugt og fallegt. Það fer bara alltaf svo lítið fyrir því í allri geðveikinni sem fylgir hátíðinni.

Svarthöfði komst því í brjálað skap þegar hann keyrði í gegnum Vesturbergið á köldum og dimmum morgni í vikunni og við honum blöstu jólaseríur á öðru hverju húsi. Nóvember er rétt hálfnaður og strax er byrjað að kynda undir delluna sem tekur Svarthöfða á taugum einu sinni á ári. Jólin koma í IKEA í október, í Breiðholtið og alls staðar annars staðar í nóvember en sjálft Jesúbarnið á ekki afmæli fyrr en í lok desember. Hvað liggur á?

Svarthöfði hefur aldrei átt jafn bágt með að skilja hvers vegna Íslendingum liggur svona ofboðslega á að byrja jólin en nú þar sem á undanförnum árum voru hér jól alla daga, allan ársins hring, með þeim eðlilegu afleiðingum að með réttu ættu engin jól að vera í ár, frekar en í fyrra.

Þetta hugsaði Svarthöfði með sjálfum sér fram eftir Vesturberginu. Hann var hálfnaður við að semja í huganum tölvupóst til Steingríms J. Sigfússonar þar sem hann skoraði á hann að fara að fordæmi Fidels frænda síns á Kúbu og fresta hreinlega jólunum vegna þess að við höfum ekki efni á þeim. Í miðjum þessum þönkum hlýnaði Svarthöfða skyndilega um hjartaræturnar og hann komst alveg óvart í jólaskap.

Þegar Svarthöfði var lítill glókollur leit hann mjög upp til hans Trölla sem stal jólunum og fannst heiðarleg tilraun hans til þess að þagga niður í jólasköllunum með því að stela bara jólunum alveg hreint frábært framtak. Áður en Svarthöfði var kominn í Árbæinn rann upp fyrir honum að útrásarvíkingarnir og bankaberserkirnir eru Tröllar okkar tíma og að þeir eru í raun búnir að stela jólunum en alveg eins og í ævintýrinu um Trölla þá fyrst rifjaðist upp fyrir bæjarbúum að jólin snúast ekki um prjál, glingur, dót og veraldleg gæði.

Jólin sem urðu eftir þegar Trölli hafði stolið jólunum voru miklu betri jól en þau sem óbermið hafði á brott með sér og Svarthöfði er alveg til í svoleiðis jól og vonar bara að útrásardólgarnir fari nú ekki að reyna að fara að dæmi Trölla og skila jólunum. Það myndi bara kalla á annað efnahagshrun og eyðslufyllerí. Svarthöfða er eiginlega alveg sama hvort jólakötturinn eða hinn sérkennilegi saksóknari taki víkingana svo lengi sem við hin getum gefið hvert öðru kerti og spil.

Þá eigum við alveg von á jólum sem geta meira að segja komið Svarthöfða í rétt skap.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?