Svarthöfði er lífsreyndur og hefur því staðið klár á því að ekkert geti lengur komið honum á óvart. Svarthöfða svelgdist því harkalega á kaffinu sínu þegar hann horfði á Styrmi Gunnarsson breytast í hippa í Kastljósi Sjónvarpsins í síðustu viku. Svarthöfða datt fyrst í hug að hann hefði hreinlega stigið inn í einhvers konar hliðarveruleika á leið sinni frá kaffikönnunni að sjónvarpinu. Að hann væri kominn inn í einhvern heim þar sem allt er öfugt.
Heim þar sem Steingrímur J. Sigfússon er smásagnahöfundur sem setti Seðlabankann á hausinn og ritstýrir Morgunblaðinu. Heim þar sem Bjarni Benediktsson er bensínafgreiðslumaður hjá N1 og elur með sér stóra drauma um pólitísk afrek. Heim þar sem Björn Bjarnason skipuleggur mótmæli gegn hernaðarbrölti og rafbyssum. Heim þar sem Árni Páll Árnason er helsti hagsmunagæslumaður öryrkja og þeirra sem minnst mega sín. Og síðast en ekki síst heim þar sem Styrmir Gunnarsson er Eva Hauksdóttir. Byltingarsinnaður hippi sem dregur Nóatúnsfánann að húni á opinberum byggingum til þess að vekja athygli á boðskap sínum.
Eftir að Svarthöfði hafði fullvissað sig um að hann væri ekki orðinn að konu, að kaffið væri enn svart og sykurlaust og að hann væri virkilega staddur á nýja Íslandi þar sem greinilega allt getur gerst. Efnahagshrunið hlýtur að bjóða upp á endalausa möguleika fyrst Styrmir Gunnarsson stekkur fram með heróp hippana á vörum: Power to the people! er hinn nýi boðskapur einhvers innvígðasta og innmúraðasta baktjaldamakkara síðustu ára.
Styrmir Gunnarsson er svona um það bil síðasti maðurinn í heiminum sem Svarthöfði hefði getað ímyndað sér að færi í skræpótta mussu og gerðist hippi á gamals aldri. En þessi staðreynd blasir nú við og Svarthöfði býður spenntur eftir því að fylgjast með upp á hverju Styrmir mun taka með nýju vinum sínum í Saving Iceland. Skvettir hann súrmjólk á þingmenn Sjálfstæðisflokksins, rauðri málningu á Valhöll eða hlekkjar hann sig við vinnuvélar? Svarthöfði gefur sér í það minnsta að Styrmir muni ekki vera með neitt hálfkák í baráttu sinni fyrir opnu samfélagi. Stríðið gegn klíkusamfélaginu, leyndarhyggjunni og einkavinavæðingu verður ekki háð með neinu hálfkáki þegar þessi mikli marskálkur klíkusamfélagsins, leyndarhyggjunnar og einkavinavæðingarinnar snýst gegn sínum gömlu spilltu vinum.
Svarthöfði hélt að Styrmir væri jafn óhagganlegur og Björn Bjarnason sem státar sig af því að skipta aldrei um skoðun. Sinnaskipti Styrmis eru miklu dramatískari en svo að maður ákveði að vera í bláum sokkum frekar en svörtum og að komast að þeirri niðurstöðu að rafbyssa sé skemmirlegra tól en kylfa. Þeir sem sáu Styrmi í sjónvarpinu urðu vitni að algerri umpólun. Sáu upphafið að nýjum og æsispennandi kafla í þroskasögu þessa kaldastríðshermanns sem er senniega að breytast í hústökumann.
Það eina sem Svarthöfði áttar sig ekki á er hvort það geti verið að Styrmir hafi allt í einu séð villu síns vegar. Gert sér grein fyrir að hann hefur verið í fremstu víglínu helfarar Sjálfstæðisflokksins gegn íslensku samfélagi eða hvort hann hafi bara fengið ógeð á valdinu eftir að flokkurinn hans missti það.
Þessi spurning er samt eiginlega aukaatriði þar sem það vegur þyngst í þessu sambandi að ef náhirð Flokksins getur breyst í kommúnu þá getur allt gerst. Sá heimur sem á gamla kerfiskalla sem breytast í hippa fyrirvaralaust á von.
This is the dawning of the age of Aquarius. The age of Aquarius. Aquarius, Aquarius. Friður!
Blogg
Hippinn frá Hádegismóum
21:24 › 23. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
