Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi er einn glæsilegasti fulltrúi sinnar kynslóðar á stjórnmálasviðinu. Hann er að mati Svarthöfða flestra vinur. Þessi góði drengur er lífsreyndur mjög. Fram kom í einlægu viðtali við hann að þegar hann var hátt á þrítugsaldri lenti hann í þeirri raun að foreldrar hans skildu. Þar með varð hann elsta skilnaðarbarn á Íslandi. Þetta hefur eflaust mótað hann og eflt til þeirra átaka sem hann stóð í innan borgarstjórnarmeirihlutans sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson stýrði sem oddviti og borgarstjóri.
Reykvískir sjálfstæðismenn höfðu ekki þann pólitíska þroska til að bera að velja Gísla Martein til að leiða lista sinn. Þess í stað var Vilhjálmur valinn. Gísli hafði allt til að bera sem nauðsynlegt er að leiðtogi hafi. Hans pólitíska brjóstamólk kemur frá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, einum af virtari fræðimönnum Íslands, og sérlegum pennavini fjölskyldu Nóbelskáldsins, Halldórs Kiljans Laxness. Og Gísli hafði heillað landsmenn með ungæði og visku í starfi sínu sem sjónvarpsmaður. Þegar hann bauð borgarbúum krafta sína hafði hann aflað sér gríðarlegrar reynslu með viðtölum við fjölda manns.
Gísli er allra manna vinur en þó sérstaklega þeirra sem njóta vinsælda hverju sinni. Þannig var vinahópur hans á meðal útrásarvíkinga stór. Og hann fór með þeim til Rússlands að veiða birni. Hann flaug í þyrlu á veiðilendurnar sem sérlegur gestur útrásarinnar. En auðvitað var hann ekki boðsgestur. Hann var sem starfsmaður veiðimanna og sá um að skemmta þeim á kvöldin með sinni óborganlegu rödd sem er einskonar sportútgáfa af rámum bassa Björns Bjarnasonar eftirlaunaþega.
Einn af vinum Gísla var Hannes Smárason athafnamaður. Hannes hélt stórveislu á Nordica til heiðurs borgarstjóraefninu þáverandi. Stór hluti Sjálfstæðisflokksins mætti til að njóta veitinga og hylla framtíðarleiðtoga sinn. Auðvitað vissi Gísli ekki af velgjörðamanni sínum. Hann þiggur í myrkri til þess að verða ekki skuldbundinn.
Og Gísli Marteinn hefur verið einkar réttsýnn í gagnrýni sinni á allt Baugshyskið. Yfirlýsingar um einokun á fjölmiðlamarkaði og í matvöruverslunun hafa streymt fram. Öllum má vera það ljóst að það er kostnaðarsamt að vera í framboði. Og það kostar peninga að laða fram eftirspurn. Gísli Marteinn leitaði, eins og fjölmargir aðrir, eftir fjárstuðningi þar sem peninga var að finna. Það var ekki aðeins Hannes Smárason heldur einnig Jón Ásgeir Jóhannesson sem lagði Gísla lið. Baugur reyndist vera aflögufær með milljón krónur handa gagnrýnanda sínum. Sjálfur segist Gísli ekki hafa haft um það hugmynd hverjir styrktu hann. Ekki vissi hann hver borgaði veisluna á Nordica. Hann vissi bara að það var fjölmenn veisla og í gestahópnum leyndist einhver sem á endanum borgaði alla brúsana. Og að sjálfsögðu hvarflaði aldrei að honum að Baugur hefði rétt honum milljón. Hann vissi bara að það komu peningar og mikið af þeim inn á heftið.
Reykvíkingar verða að taka sér tak í komandi prófkjöri. Nú verður ungi maðurinn með geislabauginn, eða ættum við að segja gíslabauginn, að fá þau áhrif sem honum ber í samræmi við gjörvileika. Kjósendur verða að flykkjast í kjörklefana og tryggja að reynslumikill, réttsýnn og gáfaður einstaklingur komist að stjórn borgarinnar. Það er nú eða aldrei.
Blogg
Gíslabaugur
17:40 › 18. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
